Fjölfætlur (Myriapoda)

Fjölfætlur mynda yfirflokk innan fylkingar liðdýra (Arthropoda). Eins og heitið bendir til hafa fjölfætlur fjölda fóta, mun fleiri en skordýr og áttfætlur. Fjölfætlur hafa greinilegt höfuð með fálmurum, bitmunni og smáaugum sem ýmist eru stök eða í þyrpingum. Bolurinn er langur, mjór og margliðskiptur, þar sem liðirnir eru hver öðrum líkir og eitt til tvö fótapör á hverjum lið.

Fjórir flokkar fjölfætlna hafa fundist á Íslandi.

 

 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: