Margfætlur (Chilopoda)
Margfætlur hafa langan, mjóan, margliðskiptan, nokkuð flatvaxinn bol. Höfuð er flatvaxið með smáaugu sem eru ýmist í þyrpingum eða stök. Fálmarar eru langir og þráðlaga og sterkir bitkjálkar vita fram. Á fyrsta lið er sérhæft fótapar sem grípur um bráð og gefur frá sér eitur. Á öðrum liðum er eitt par ganglima. Aftasta fótapar er lengst og veit aftur frá bolnum. Fjöldi liða er breytilegur eftir tegundum.
Margfætlur leynast að degi til í fylgsnum sem umhverfið býður upp á, undir steinum, spýtum og tilfallandi hlutum, en fara á stjá þegar rökkvar til að leita eftir bráð. Þær eru illvíg rándýr í heimi smádýranna. Margfætlur eru hraðskreiðar og fljótar að forða sér verði þær fyrir ónæði.
Margfætlur á Íslandi
Alls hafa fundist sjö tegundir margfætlna á Íslandi. Þær má flokka í tvær megingerðir. Annars vegar eru fjórar rauðbrúnar tegundir sem helst ber fyrir augu fólks og flestir kannast við. Þar á meðal er garðamargfætlan (Lithobius forficatus) sem er sýnu stærst og algengust. Hins vegar eru þrjár gular tegundir sem hafa mun mjórri bol, með miklu fleiri liði og þar með fætur. Þær eru auk þess mun meira hægfara. Allar gulu tegundirnar eru fágætar.
Íslenskar margfætlur tilheyra tveim ættbálkum, Geophilomopha og Lithobiomorpha.
Geophilomorpha
Geophilidae
Brachygeophilus truncorum (Bergsöe & Meinert, 1866)
Geophilus proximus C.L. Koch, 1847
Lithobiomorpha
Henicopidae
Lamyctes emarginatus (Newport, 1844)
Himantariidae
Haplophilus subterraneus (Leach, 1817)
Lithobiidae
Lithobius erythrocephalus C.L. Koch, 1847
Lithobius forficatus (Linnaeus, 1758)
Lithobius melanops Newport, 1845
