Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Grasvefari (Eana osseana) í Surtsey, algengasta fiðrildi Íslands. © Erling Ólafsson

Þúsundfætlur (Diplopoda)

Þúsundfætlur hafa langan og mjóan, margliðskiptan og sívalan bol. Á kúlulaga höfði hafa þær tvær þyrpingar af allmörgum smáaugum, tvo stutta fálmara og tvo kjálka sem vita niður. Frambolur er stuttur, gerður úr fjórum einföldum liðum, þeir þrír öftustu með einu fótapari hver. Afturbolur er langur og er fjöldi liða afar breytilegur eftir tegundum. Á hverjum liðanna eru tvö pör fóta.

Þúsundfætlur fara sér hægt og halda sig einkum á rökum og dimmum stöðum, t.d. undir steinum, feysknum viðardrumbum og í rotnandi laufi. Þær nærast einkum á rotnandi plöntuleifum.

Þúsundfætlur á ÍslandiÞúsundfætla

Þúsundfætlur eru lítt áberandi á Íslandi. Alls hafa fundist átta tegundir þeirra. Aðeins ein tegund, Proterioulus fuscus, virðist nokkuð útbreidd og hefur fundist við fjölbreytilegar aðstæður víða um land. Tvær tegundir, Brachydesmus superus og Polydesmus inconstans, finnast hér og þar, einkum í görðum og skóglendi. Allar aðrar eru afar fágætar og hafa fundist við jarðhita, í húsagörðum og gróðurhúsum.

Íslenskar þúsundfætlur tilheyra tveim ættbálkum, Juliformia og Polydesmoidea.

 

Þúsundfætlur (ógreind tegund)

JULIFORMIA

Blaniulidae

Choneiulus palmatus (Nemec, 1895)

Proterioulus fuscus (Am Stein, 1875)

Julidae

Allajulus nitidus (Verhoeff, 1891)

Cylindrioulus brittanicus (Verhoeff, 1891)

Cylindrioulus latestriatus (Curtis, 1845)

POLYDESMOIDEA

Polydesmidae

Brachydesmus superus Latzel, 1889

Oxidus gracilis (C.L. Koch, 1847)

Polydesmus inconstans Latzel, 1884


Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Íslenska fánan > Fjölfætlur > Flokkar fjölfætlna > Þúsundfætlur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica