Hvítfætlur (Symphyla)
Hvítfætlur eru smávaxnar fjölfætlur, í mesta lagi sex mm á lengd. Bolur þeirra er liðskiptur, grannur og veikbyggður, alhvítur á lit. Bakplötur eru þunnar og flatar. Kúlulaga mjókkar fram í fíngerðan bitmunn sem veit fram og niður. Hvítfætlur hafa ekki augu en fálmarar þeirra eru langir og örgrannir, gerðir úr fjölmörgum mjög stuttum liðum. Eitt par fóta er á hverjum lið bolsins, alls 12 pör. Tveir odddregnir kítínstafir vita aftur og upp frá afturenda.
Hvítfætlur eru ljósfælnar og þurfa hátt rakastig til að dafna. Þær finnast helst undir steinum og lausum hlutum á röku undirlagi og í rotnandi laufi. Þær nærast á plöntum, rótum þeirra og fræjum.
Hvítfætlur á Íslandi
Hvítfætlur fundust fyrst á Íslandi árið 1977. Síðan hafa þær fundist í húsagörðum víða á höfuðborgarsvæðinu, en einnig við jarðhita í Hveragerði og Borgarfirði.
Tegundagreining er mjög torveld, en svo virðist allar hvítfætlur sem safnað hefur verið tilheyri tegund af ættkvíslinni Scutigerella.
Hvítfætla (Scutigerella sp.)
SCOLOPENDRELLIDA
Scutigerellidae
Scutigerella sp.
