Krabbadýr (Crustacea)
Krabbadýr er yfirflokkur dýra innan fylkingar liðdýra (Arthropoda). Þessi dýrahópur er sjaldan bendlaður við þurrt land, enda lifa langflest krabbabýr í sjó, ferskvatni eða í fjöru. Um helmingur tegunda krabbadýra tilheyra flokki stórkrabba (Malacostraca). Þar má sem dæmi telja hina eiginlegu krabba, humra, rækjur og marflær.
Örfáar tegundir krabbadýra hafa aðlagast landlífi. Nokkrar slíkar finnast á Íslandi svokallaðar gráloddur eða grápöddur og eru allar skyldar og líkar útlits. Gráloddur eru stórkrabbar af ættbálki þanglúsa (Isopoda) eins og hinar kunnu þanglýs í sjó og þangfjörum.
Gráloddur hafa tiltölulega lítinn haus með fálmurum, bitmunni og augum sem eru misáberandi eftir tegundum. Bolurinn er sporöskjulaga og greinilega liðskiptur. Gráloddur hafa sjö pör fóta. Þær anda með eins konar lungum og eru þær með tvö til fimm pör slíkra á milli fóta. Þær tegundir sem hafa flest lungu geta komist lengur af í þurrki en hinar sem færri lungu hafa. Þrátt fyrir lungun eru gráloddur mjög háðar raka og halda sig því gjarnan undir steinum eða í þéttum rökum gróðri og jarðvegi og lifa þar á rotnandi plöntuleifum.
Landkrabbar á Íslandi
Alls hafa fundist sjö tegundir af gráloddum á Íslandi. Þær eru allar áþekkar í útliti þó þær tilheyri sex mismunandi ættum. Þær finnast einna helst við jarðhita og í og við gróðurhús. Einnig má rekast á þær í húsagörðum þar sem gróður er þéttvaxinn og gróskumikill. Ein tegund, sölvahrútur, finnst efst á sjávarströndum, á sjávarfitjum og klettum við sjó. Hún er í raun tengiliður þanglúsa í fjöru og grálodda á landi.
ISOPODA
Armadillidiidae
Armadillidium nasutum Budde-Lund, 1885
Cylisticidae
Cylisticus convexus (De Geer, 1778) Garðalodda
Ligiidae
Ligia oceanica Linnaeus, 1867 Sölvahrútur
Oniscidae
Oniscus asellus Linnaeus, 1758 Varmalodda
Porcellionidae
Porcellio dilatatus Brandt, 1833
Porcellio scaber Latreille, 1804 Laugalodda
Trichoniscidae
Trichoniscus pusillus Brandt, 1833 Dverglodda


