Skordýr (Insecta)

Skordýr er flokkur smádýra innan fylkingar liðdýra (Arthropoda). Skordýr eru afar fjölbreyttu

Ljósm. Erling Ólafsson
Varmasmiður (Carabus nemoralis). Ljósm. Erling Ólafsson

r flokkur og er sá flokkur dýra sem hefur flestar tegundir og einstaklinga innanborðs. Líkami skordýra er þrískiptur, haus, frambolur og afturbolur. Á hausnum hafa þau fálmara og samsett augu. Á frambol eru þrjú pör fóta, oftast tvö pör vængja, stundum eitt par eða jafnvel engir vængir. Afturbolur er greinilega liðskiptur og án útlima. Köngulær, margfætlur og grápöddur tilheyra því ekki skordýrum, heldur áttfætlum, fjölfætlum og krabbadýrum.

Skordýr eru afar mikilvæg lífríkinu, þar sem þau taka þátt í ýmsum nauðsynlegum ferlum náttúrunnar, s.s. niðurbroti lífrænna efna, frævun blóma, eru mikilvæg fæða fyrir önnur dýr og jafnvel plöntur o.s.frv. Á Íslandi hafa fundist skordýr af 22 ættbálkum.



 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: