Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Sveifflugan glersveifa (Eupeodes lundbecki) á Eyrabakka. © Erling Ólafsson

Ættbálkar skordýra (Insecta)

Mordýr (Collembola)

Mordýr eða stökkmor, eins og þau kallast líka, eru ýmist fremur eða mjög smá jarðvegsdýr, 0,5-5 mm á lengd. Margar tegundir eru ljósar á lit en aðrar í ýmsum litum, gulum, fjólubláum, gráum, brúnum. Mordýr eru ýmist kúlulaga eða staflaga. Aftarlega á afturbolnum hafa flest þeirra stökkgaffal sem þau nota til að stökkva með.

Frumskottur (Protura)

Frumskottur eru örsmá, frumstæð skordýr. Þær eru ljósar á lit og hafa hvorki fálmara né augu. Framfætur eru tiltölulega langir og beinast fram á við, fram fyrir höfuðið. Þannig koma þeir sennilega að nokkru leyti í stað fálmara sem skynjarar.

Stökkskottur (Archaeognatna)Kampafló

Stökkskottur eru frumstæð, vængjalaus skordýr. Þær eru aflangar, bolurinn 12-14 mm langur, hafa langa, þráðlaga fálmara og þrjú löng, liðskipt skott sem öll beinast aftur frá bolnum. Auk þriggja fótapara á frambol hafa stökkskottur leifar fóta á afturbol sem bera uppruna þeirra vitni, þ.e. forföður sem skordýrin eiga sameiginlegan með fjölfætlum. Þær eru snarar í snúningum og geta stokkið eins og nafnið bendir til.

Kögurskottur (Thysanura)Ylskotta

Kögurskottur eru frumstæð, vængjalaus skordýr. Bolur þeirra er breiðastur framan til og mjókkar jafnt aftur, 10-12 mm langur. Þær hafa langa fálmara og þrjú löng, hærð skott á afturenda. Miðskottið vísar beint aftur en hin vísa meira út til hliðanna. Kögurskottur hafa leifar fóta á afturbol (sjá stökkskottur). Þær hafa lítil eða engin augu.

Dægurflugur (Ephemeroptera)Dægurfluga

Dægurflugur hafa mjúkan líkama sem endar í tveimur eða þremur löngum, liðskiptum skottum. Þær hafa stutta fálmara. Vængirnir eru langir, með þéttriðnu æðaneti. Flestar dægurflugur hafa tvö pör vængja, þar sem fremri vængir eru mun stærri en þeir aftari og stundum vantar aftari vængina (sbr. íslenska tegundin).

Vogvængjur (Odonata)Drekafluga

Vogvængjur deilast í tvo undirættbálka, drekaflugur (Anisoptera) og glermeyjar (Zygoptera). Vogvængjur eru stór skordýr, með stór augu og tvö pör af löngum vængjum með þéttriðnu æðaneti. Þær geta ekki lagt vængina að bolnum þegar þær sitja. Drekaflugur halda vængjunum láréttum út frá bolnum en glermeyjar leggja þá saman yfir bolnum þannig að snertiflötur vængjanna liggur lóðréttur. Á drekaflugum er munur á fram- og afturvængjum, en þeir eru nánast eins á glermeyjum.

Steinflugur (Plecoptera)Steinfluga

Steinflugur eru meðalstór, frumstæð skordýr, með mjúkan bol. Fálmarar eru langir, þráðlaga. Þær hafa tvö pör vængja sem leggjast flatir yfir afturbol í hvíld, afturvængir eru mun breiðari en framvængir. Á afturenda hafa steinflugur tvö liðskipt skott.

Beinvængjur (Orthoptera)Engispretta

Beinvængjur eru meðalstór til stór skordýr, stundum mjög stór. Þær hafa sterka bitkjálka og meðallanga til mjög langa fálmara. Tvö pör vængja, framvangir mjóir leðurkenndir, en afturvængir breiðir og himnukenndir sem liggja samanbrotnir undir framvængjunum í hvíld. Eru stundum vænglausar. Beinvængjur hafa stóra og mjög sterka afturfætur sem þær nota til að stökkva með kröftuglega. Á afturenda eru tvö stutt skott.

Kakkalakkar o.fl. (Dictyoptera)Kakkalakki

Kakkalakkar (Blattodea) tilheyra ættbálknum Dictyoptera ásamt bænabeiðum (Mantodea) og termítum (Isoptera). Samheiti vantar á ættbálkinn enda hefur skilgreining hans verið mjög á reiki. Hér er aðeins fjallað um kakkalakka þar sem hina dýrahópana er ekki að finna á Íslandi. Kakkalakkar eru stór, forn skordýr. Þeir eru flatvaxnir, sporöskjulaga ofan frá séð, með mjög langa og granna fálmara. Fætur eru fremur langir með mörgum göddum. Tvö pör af stinnum leðurkenndum vængjum. Á afturenda eru tvö lensulaga skott.

Klaufhalar (Dermaptera)Klaufhali - ungviði

Klaufhalar eru meðalstór skordýr. Fremra vængjapar hefur ummyndast í litlar plötur en þær hylja samanbrotna afturvængi sem brúkast til flugs. Klaufhalar hafa langa, þráðlaga, margliða fálmara. Á afturenda eru tveir harðir kítínstafir sem mynda nokkurs konar griptöng. Á henni þekkjast klaufhalar auðveldlega.

Skortítur (Hemiptera)Fnyktita

Skortítur eru afar fjölbreytilegur og tegundaríkur ættbálkur, að mestu skipaður smáum og meðalstórum skordýrum. Fálmarar oftast gerðir af tiltölulega fáum en löngum liðum. Munnlimir mynda mislangan sograna sem dýrin stinga inn í vefi plantna og dýra til að sjúga upp næringu og er hann einkennandi fyrir ættbálkinn. Skortítur hafa ýmist tvö pör vængja eða eru vængjalausar, framvængir ýmist horn- eða leðurkenndir eða himnukenndir eins og afturvængirnir.Kögurvængja

Kögurvængjur (Thysanoptera)

Kögurvængjur eru mjög smávaxin, staflaga skordýr. Fálmarar eru stuttir, rætur þeirra liggja þétt saman og mynda þeir V fram úr hausnum. Munnlimir eru oddlaga og með þeim skrapa dýrin þekjuvefi plantna. Kögurvængjur hafa tvö pör mjórra vængja með löngum hárum (kögri) á afturjaðri vængjanna. Sumar kögurvængjur eru þó vængjalausar.

Ryklýs (Psocoptera)Parketlús

Ryklýs eru flestar agnarsmá skordýr, gjarnan ljósleit og með mjúkan og viðkvæman bol, stundum þó dökkar á lit. Ryklýs hafa kúlulaga höfuð með langa, örfína og margliðskipta fálmara. Frambolur lítill en afturbolur gjarnan blásinn. Þær eru ýmist vængjaðar, með tvö pör vængja, stundum eitt par, eða vængjalausar, vængir stundum umbreyttir.

Naglýs (Mallophaga)

Naglýs eru smávaxin sníkjudýr á fuglum og spendýrum. Þær lifa utan á hýslum sínum og naga fiður, hár og húðflögur. Naglýs eru flatvaxnar og vængjalausar. Höfuð er breitt, lítil eða engin augu, fálmarar stuttir og munnlimir gerðir til að naga. Fætur með sterkar klær og vel búnir til að tryggja festu á hýslinum.

Soglýs (Siphunculata)

Soglýs eru smávaxin sníkjudýr útvortis á fuglum og spendýrum eins og naglýsnar og nærast á blóði. Þær eru einnig flatvaxnar og vængjalausar. Höfuðið er mjótt, lítil eða engin augu, fálmarar stuttir og munnlimir mótaðir til að sprengja húð og sjúga. Ein sterka kló á hverjum fæti, til að tryggja góða festingu við hýsilinn.

Netvængjur (Neuroptera)Netvængja

Netvængjur Netvængjur eru meðalstór skordýr með grannan, mjúkan bol. Höfuð tiltölulega lítið með stór augu og langa, þráðlaga fálmara. Tvö pör af stórum, glærum vængjum liggja sem hátt ris yfir bolnum, vængæðar mynda þéttriðið netmynstur. Lirfur hafa sterka bitkjálka sem skaga fram úr höfðinu.

Bjöllur (Coleoptera)Bjöllur

Bjöllur eru mjög fjölbreytilegar bæði að stærð og gerð. Sumar eru agnarsmáar, aðrar með stærstu skordýrum. Flestar hafa mjög harða skel og margar hverjar eru litskrúðugar. Fálmarar mjög breytilegir, munnlimir oftast sterkir bitkjálkar. Fyrsti liður frambols stór og hreyfanlegur en aftari liðir samvaxnir afturbol. Að grunni til hafa bjöllur tvö pör vængja. Aftara parið er notað til flugs en þegar flugvængirnir eru ekki í notkun eru þeir brotnir saman og geymdir undir fremri vængjunum sem eru ummyndaðir í harða skel, svokallaða skjaldvængi. Margar bjöllur hafa misst flugvængina.

Æðvængjur (Hymenoptera)Sníkjuvespa

Æðvængjur eru afar fjölbreytilegar bæði að gerð og í lífsháttum. Sumar eru agnarsmáar, vart sýnilegar með berum mannsaugum en aðrar mjög stór skordýr. Æðvængjur hafa yfirleitt greinilega þrískiptan bol, með grannt mitti á milli frambols og afturbols. Á kúlulaga höfði eru margliðskiptir fálmarar, stundum mjög langir, áberandi augu og sterkir bitkjálkar. Þær hafa tvö pör vængja með tiltölulega fáum æðum, aftari vængir mun minni en þeir fremri. Sumar hafa misst vængina. Mörg kvendýr hafa áberandi varppípu á afturenda og önnur stungugadd tengdan eiturkirtli.

Vorflugur (Trichoptera)Vorfluga

Vorflugur eru meðalstór eða frekar stór skordýr með nokkuð mjúkan búk, oftast einlitar gul- eða grábrúnar. Á höfði eru langir þráðlaga, margliðskiptir fálmarar, áberandi augu og munnur sem líkist bitmunni þó eiginlega kjálka vanti. Hærðir vængir mynda risþak yfir bolnum í hvíldarstöðu, afturvængir mun breiðari en framvængir.

Fiðrildi (Lepidoptera)Víðimölur

Fiðrildi eru afar breytileg að stærð, sum eru smávaxin en önnur með stórvöxnustu skordýrum. Bolur þeirra er frekar mjúkur og viðkvæmur, allur þakinn hreisturflögum í stað hára. Á kúlulaga höfði eru stór augu og langir, grannir og margliðskiptir fálmarar, stundum með hnúð á endanum. Munnlimir mynda langan sograna sem hringast upp undir höfuðið þegar hann er ekki í notkun. Tvö pör af stórum vængjum, sem í hvíld liggja ýmist flatir saman lóðrétt upp frá bolnum, eða lárétt flatir eða hvelfdir yfir honum. Hreistrið myndar oft einkennandi litmynstur á vængjum.

Tvívængjur (Diptera)Randasveifa

Tvívængjur eru með tegundaríkustu ættbálkum skordýra. Í daglegu tali kallast þær flugur og eru flestar lítil til meðalstór skordýr. Bolurinn er oftast greinilega þrískiptur. Höfuð gjarnan kúlulaga með stór augu, oftast stutta, þó stundum langa fálmara, og munnlimir mynda sograna. Tvívængjur hafa eitt par vængja, þar sem aftara vængjaparið hefur ummyndast í kylfulaga skynfæri sem kallast kólfar og hafa því hlutverki að gegna að skynja loftstrauma og láta fluguna halda jafnvægi á flugi.

Flær (Siphonaptera)

Flær eru einsleit skordýr þar sem hver tegundin er annarri lík í sköpulagi vegna mjög sérþróaðra lífshátta. Þær eru smávaxnar, hliðflatar og vængjalausar, brúnar á lit. Augu eru einföld eða vantar, fálmarar stuttir, í hvilftum, og munnlimir gerðir til að stinga og sjúga blóð. Fætur með sterkum göddum og klóm, vel aðlagaðir því að hanga í hárum eða fjöðrum og til að stökkva.




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Íslenska fánan > Skordýr > Ættbálkar skordýra

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica