Dægurflugur (Ephemeroptera)
Dægurflugur hafa mjúkan líkama sem endar í tveimur eða þremur löngum, liðskiptum skottum. Þær hafa stutta fálmara. Vængirnir eru langir, með þéttriðnu æðaneti. Flestar dægurflugur hafa tvö pör vængja, þar sem fremri vængir eru mun stærri en þeir aftari og stundum vantar aftari vængina (sbr. íslenska tegundin).
Dægurflugur finnast helst nálægt vötnum, en gyðlur þeirra alast upp í vatni og nærast flestar á plöntum. Gyðlur flestra tegunda þroskast á einu ári. Þá skríða þær á land, hafa hamskipti og fá vængi. Þessi fyrstu vængjuðu dýr eru þó ekki fullþroska, heldur er um að ræða eins konar unglinga (subimago). Eftir ein hamskipti í viðbót verða dýrin kynþroska. Dægurflugur fá nafn sitt af því að fullorðnar flugur lifa flestar í innan við einn sólarhring, rétt nógu lengi til að makast og verpa.
Dægurfluga (Cloeon simile), fullorðin
Dægurflugur á Íslandi
Hérlendis finnst aðeins ein tegund dægurflugna og kallast hún einfaldlega dægurfluga (Cloeon simile), en hefur einnig verið nefnd fisdægra. Hún virðist vera fágæt, þó hún hafi fundist á nokkrum stöðum í flestum landshlutum. Lífshættir tegundarinnar hér á landi eru lítt kunnir.
EPHEMEROPTERA
Baetidae
Cloeon simile Eaton, 1870 Dægurfluga
Dægurfluga (Cloeon simile), gyðla


