Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lóuþræll - Dunlin (Calidris alpina). © Erling Ólafsson

Kakkalakkar o.fl. (Dictyoptera)

Kakkalakkar (Blattodea) tilheyra ættbálknum Dictyoptera ásamt bænabeiðum og termítum. Samheiti vantar á ættbálkinn enda hefur skilgreining hans verið mjög á reiki. Hér er aðeins fjallað um kakkalakka þar sem hina dýrahópana er ekki að finna á Íslandi. Kakkalakkar eru stór, forn skordýr. Þeir eru flatvaxnir, sporöskjulaga ofan frá séð, með mjög langa og granna fálmara. Fætur eru fremur langir með mörgum göddum. Tvö pör af stinnum leðurkenndum vængjum. Á afturenda eru tvö lensulaga skott.

Kakkalakkar eru alætur og naga flest lífrænt sem þeir komast í. Þeir lifa ýmist innanhúss eða utan, á norðurslóðum eingöngu innanhúss.. Þeir eru ljósfælnir og eru því einkum á ferli að nóttu til. Þeir eru afar snöggir í hreyfingum og fljótir að forða sér þegar ónæði steðjar að. Á ytra borði eru kakkalakkar vaxbornir og hálir. Af þeim leggur nokkurn daun og óþrif eru af skítnum úr þeim.

Kakkalakkar á ÍslandiKakkalakki

Á Íslandi hafa fundist fimm tegundir kakkalakka. Ameríski kakkalakkinn (Periplaneta americana) hefur verið viðloðandi á Keflavíkurflugvelli. Bæði hann og aðrar tegundir kakkalakka finnast af og til annars staðar á landinu og hafa stundum náð að festa sig í sessi tímabundið, einkum þýski kakkalakkinn (Blattella germanica). Yfirleitt má þó rekja flest tilvik til vöruinnflutnings eða ferðalaga fólks til suðlægari landa. Kakkalakkar er hvimleiðir sambýlingar okkar og er því full ástæða til að sporna gegn landnámi þeirra hér á landi.

 

 

Ameríski kakkalakkinn (Periplaneta americana)

DICTYOPTERA

Blattellidae

Blatta germanica (Linnaeus, 1767)

Blattidae

Blatta orientalis Linnaeus, 1758

Periplaneta americana (Linnaeus, 1758)

Periplaneta australasiae (Fabricius, 1775)

Panchloridae

Panchlora peruana Saussure, 1864


Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Íslenska fánan > Skordýr > Ættbálkar skordýra > Kakkalakkar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica