Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Tjaldshreiður (Oystercatcher eggs - Haematopus ostralegus) eftir öskufall í Fljótshlíð, maí 2010. © Erling Ólafsson

Klaufhalar (Dermaptera)

Klaufhalar eru meðalstór skordýr. Fremra vængjapar hefur ummyndast í litlar plötur en þær hylja samanbrotna afturvængi sem brúkast til flugs. Klaufhalar hafa langa, þráðlaga, margliða fálmara. Á afturenda eru tveir harðir kítínstafir sem mynda nokkurs konar griptöng. Á henni þekkjast klaufhalar auðveldlega.Klaufhali - ungviði

Klaufhalar eru einkum næturdýr og halda sig undir steinum, í gróðri eða á öðrum frekar þröngum, dimmum stöðum á daginn. Stundum má þó sjá þá á flugi á daginn þegar vel viðrar. Þeir eru alætur.

Klaufhalar á Íslandi

Ein tegund klaufhala, garðaklampi eða garðaklaufhali (Forficula auricularia), berst oft til Íslands með varningi, einkum grænmeti og ávöxtum. Stöku sinnum hefur hann náð hér tímabundinni fótfestu í húsum. Hugsanlegt er að hann lifi hér í einhverjum mæli í gróðurhúsum.

 

Garðaklampi (Forficula auricularia), ungviði

DERMAPTERA

Forficulidae

Forficula auricularia Linnaeus, 1758 Garðaklampi

 

  • Grein um garðaklampa (pdf-skjal)



Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Íslenska fánan > Skordýr > Ættbálkar skordýra > Klaufhalar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica