Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Laukbobbar (Oxychilus alliarius) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Kögurskottur (Thysanura)

Kögurskottur eru frumstæð, vængjalaus skordýr. Bolur þeirra er breiðastur framan til og mjókkar jafnt aftur, 10-12 mm langur. Þær hafa langa fálmara og þrjú löng, hærð skott á afturenda. Miðskottið vísar beint aftur en hin vísa meira út til hliðanna. Kögurskottur hafa leifar fóta á afturbol (sjá stökkskottur). Þær hafa lítil eða engin augu.

Kögurskottur á Íslandi

Lengi vel var aðeins ein tegund kögurskotta, silfurskotta (Lepisma saccharina) þekkt hérlendis. Hún lifir hér eingöngu innanhúss, finnst helst á rökum, skuggsælum stöðum og þyYlskottakir ekki aufúsugestur þó skaðsemi af hennar völdum sé lítil. Ylskotta (Thermobia domestica) fannst hér í fyrsta sinn árið 1993 og virðist vera að festa sig í sessi. Hún lifir innanhúss eins og silfurskottan en er hitasæknari.

Kögurskottur athafna sig einkum í myrkri að nóttu til þegar kyrrt er. Þær verða nokkuð gamlar, en talið er að þær geti náð um fimm ára aldri. Viðkoman er þó hæg, því þær verpa ekki nema fáum tugum eggja yfir ævina. Þær nærast fyrst og fremst á örsmáum myglusveppum sem þrífast þar sem rakt er, en sækja einnig í sterkjurík matvæli og geta nagað pappír, t.d. gamlar bækur sem geymdar eru við óhentugar aðstæður í rökum geymslum. Skaði af þessum dýrum er þó oftast lítill.

Ylskotta (Thermobia domestica)

THYSANURA

Lepismatidae

Lepisma saccharina Linnaeus, 1758   Silfurskotta

Thermobia domestica (Packard, 1837)  Ylskotta

 

  • Grein um ylskottur (pdf-skjal)



Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Íslenska fánan > Skordýr > Ættbálkar skordýra > Kögurskottur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica