Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Laukbobbar (Oxychilus alliarius) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Naglýs (Mallophaga)

Naglýs eru smávaxin sníkjudýr á fuglum og spendýrum. Þær lifa utan á hýslum sínum og naga fiður, hár og húðflögur. Naglýs eru flatvaxnar og vængjalausar. Höfuð er breitt, lítil eða engin augu, fálmarar stuttir og munnlimir gerðir til að naga. Fætur með sterkar klær og vel búnir til að tryggja festu á hýslinum.

Flestar tegundir eru afar sérhæfðar og finnast aðeins á einni tegund hýsils eða fáeinum náskyldum tegundum. Þannig hafa naglýs nýst við skyldleikarannsóknir á fuglum. Auk þess eru naglýs gjarnan fastbundnar ákveðnum stað á hýslinum. Þannig er t.d. sjaldnast um sömu tegund að ræða á höfði fugls og undir vængjum hans.

Naglýs á Íslandi

Alls hefur 61 tegund naglúsa fundist á fuglum okkar og spendýrum, en margra fleiri mætti vænta með markvissum rannsóknum. Þessi áhugaverði dýrahópur er illa rannsakaður hér á landi. Nafnkunnar eru þrjár náskyldar tegundir á húsdýrum okkar, kúalús (Bovicola bovis), hrossalús (Bovicola equi) og sauðalús (Bovicola ovis).

Aðgangur að tegundaskrá er í undirbúningi.




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Íslenska fánan > Skordýr > Ættbálkar skordýra > Naglýs

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica