Netvængjur (Neuroptera)
Netvængjur eru meðalstór skordýr með grannan, mjúkan bol. Höfuð tiltölulega lítið með stór augu og langa, þráðlaga fálmara. Tvö pör af stórum, glærum vængjum liggja sem hátt ris yfir bolnum, vængæðar mynda þéttriðið netmynstur. Lirfur hafa sterka bitkjálka sem skaga fram úr höfðinu.
Netvængjur eru mikil átvögl sem nærast á öðrum smádýrum, t.d. blaðlúsum, og gegna mikilvægu hlutverki við að halda fjölda blaðlúsa í skefjum.
Netvængjur á Íslandi
Hérlendis lifir aðeins ein tegund netvængja, birkiglyrna (Wesmaelinus nervosus), brún á lit. Önnur tegund, gullglyrna (Chrysopa carnea), græn á lit, berst hingað árlega með varningi og stundum í umtalsverðum fjölda með vindi. Þriðja tegundin, snákvængja, barst til landsins með varningi.
NEUROPTERA
Chrysopidae
Chrysopa carnea Stephens, 1836 Gullglyrna
Hemerobiidae
Wesmaelius nervosus (Fabricius, 1793) Birkiglyrna
Raphidiidae
Raphidia xanthostigma Schummel, 1832 Snákvængja
Birkiglyrna (Wesmaelius nervosus)


