Ryklýs (Psocoptera)
Ryklýs eru flestar agnarsmá skordýr, gjarnan ljósleit og með mjúkan og viðkvæman bol, stundum þó dökkar á lit. Ryklýs hafa kúlulaga höfuð með langa, örfína og margliðskipta fálmara. Frambolur lítill en afturbolur gjarnan blásinn. Þær eru ýmist vængjaðar, með tvö pör vængja, stundum eitt par, eða vængjalausar, vængir stundum umbreyttir.
Ryklýs eru rakasæknar, nærast fyrst og fremst á myglusveppum og mjölvaríkri vöru. Sumar finnast í náttúrunni, aðrar innanhúss, t.d. innan um gamlar bækur en af því hafa heitin bóklús og skræðulús verið dregin.
Ryklýs á Íslandi
Á Íslandi hafa fundist tíu tegundir ryklúsa, allar í híbýlum eða gripahúsum nema ein, Mesopsocus unipunctatus, sem finnst á birkitrjám í birkiskógum okkar. Hún er mun stærri en aðrar tegundir hérlendar. Ryklýs finnast í flestum húsum, ef ekki öllum, hér á landi. Það er fyrst og fremst spurning um það hvaða tegundir eru hvar og í hversu miklum mæli. Meira er um ryklýs í gömlum húsum en nýjum og halda þær sig þar sem rakt er, t.d. í baðherbergjum, við blómapotta í gluggakistum og í vaskskápum svo dæmi séu nefnd. Ein tegund, parketlús (Dorypteryx domestica), er þó í mestum mæli í nýbyggðum húsum og birtist hún gjarnan í kjölfar þess að parket er lagt á nýlega gólfsteypuna sem enn heldur í sér umtalsverðum raka.
Parketlús (Dorypteryx domestica)
PSOCOPTERA
Liposcelidae
Liposcelis bicolor (Banks, 1900)
Liposcelis decolor (Pearman, 1925)
Mesopsocidae
Mesopsocus unipunctatus (Müller, 1764)
Psyllipsocidae
Dorypteryx domestica Smithers, 1958
Phylliscopus ramburii Sélys Longchamps, 1872
Sphaeropsocidae
Badonnelia titei Pearman, 1953
Trogiidae
Cerobasis guestfalica (Kolbe, 1880)
Lepinotus patruelis Pearman, 1931
Myopsocnema annulata (Hagen, 1865)
Trogium pulsatorium (Linnaeus, 1758)

