Soglýs (Siphunculata)
Soglýs eru smávaxin sníkjudýr útvortis á fuglum og spendýrum eins og naglýsnar og nærast á blóði. Þær eru einnig flatvaxnar og vængjalausar. Höfuðið er mjótt, lítil eða engin augu, fálmarar stuttir og munnlimir mótaðir til að sprengja húð og sjúga. Ein sterka kló á hverjum fæti, til að tryggja góða festingu við hýsilinn.
Soglýs og naglýs hafa löngum verið taldar til sama ættbálks (Phthiraptera). Soglýs eru einnig afar sérhæfðar í vali á hýslum og staðsetningu á líkama þeirra.
Soglýs á Íslandi
Á Íslandi hafa fundist fimm tegundir soglúsa, þar af ein, mannalúsin (Pediculus humanus) í tveimur afbrigðum, höfuðlús (P. h. humanus) og fatalús (P. h. corporis). Þá skal og getið flatlúsar (Phthirus pubis) sem við tökum ekki með fögnuði frekar en þeim lúsum sem leggjast á kollinn okkar.
SIPHUNCULATA
Echinophthiriidae
Echinophthirius horridus (von Olfers, 1816) Selalús
Haematopinidae
Haematopinus suis (Linnaeus, 1758) Svínalús
Lingognathidae
Linognathus setosus (von Olfers, 1816) Hundalús
Pediculidae
Pediculus humanus capitis DeGeer, 1778 Höfuðlús
Pediculus humanus corporis DeGeer, 1778 Fatalús
Phtiridae
Phthirus pubis (Linnaeus, 1758) Flatlús

