Steinflugur (Plecoptera)
Steinflugur eru meðalstór, frumstæð skordýr, með mjúkan bol. Fálmarar eru langir, þráðlaga. Þær hafa tvö pör vængja sem leggjast flatir yfir afturbol í hvíld, afturvængir eru mun breiðari en framvængir. Á afturenda hafa steinflugur tvö liðskipt skott.
Steinflugur finnast í og við vatn, einkum læki og vatnsbakka þar sem ölduróts gætir. Gyðlur þeirra lifa í vatni og eru sumar tegundir rándýr en aðrar nærast á plöntum. Fullorðnar steinflugur eru síður en svo fimar á flugi og fara því sjaldnast langt frá vatninu. Yfirleitt sjást þær frekar á hlaupum en fljúgandi.
Steinflugur á Íslandi
Á Íslandi er aðeins ein tegund steinflugna sem kallast því einfaldlega steinfluga (Capnia vidua). Hún er ófleyg þar sem vængirnir duga henni ekki til flugs. Kvendýr hafa samt greinilega vængi en vængir karldýra eru dvergvaxnir. Fullþroska gyðlur skríða upp fyrir vatnsborð snemma vors og fullorðnu dýrin fara á stjá í kjölfarið. Stundum má finna umtalsverðan fjölda steinflugna á grjótbökkum lækja í apríl.
Steinfluga (Capnia vidua), kvendýr
PLECOPTERA
Capniidae
Capnia vidua Klapalek, 1904 Steinfluga

