Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Svartbakur - Great Black-backed Gull (Larus marinus). © Erling Ólafsson

Stökkskottur (Archaeognatha)

Stökkskottur eru frumstæð, vængjalaus skordýr. Þær eru aflangar, bolurinn 12-14 mm langur, hafa langa, þráðlaga fálmara og þrjú löng, liðskipt skott sem öll beinast aftur frá bolnum. Auk þriggja fótapara á frambol hafa stökkskottur leifar fóta á afturbol sem bera uppruna þeirra vitni, þ.e. forföður sem skordýrin eiga sameiginlegan með fjölfætlum. Þær eru snarar í snúningum og geta stokkið eins og nafnið bendir til.

Í fljótu bragði líkjast stökkskottur kögurskottum. Þær má m.a. aðgreina á augunum, þar sem stökkskottur hafa stór, samsett augu en kögurskottur lítil eða engin augu.

Stökkskottur á Íslandi

Á Íslandi lifir ein tegund stökkskotta, kampaskotta (Petrobius brevistylis). Hún Kampaflóþekkist einnig undir heitinu kampafló. Kampaskotta hefur fundist í öllum landshlutum. Hún finnst helst í fjörukömbum og sjávarhömrum. Sennilega er hún við sjávarsíðuna allt í kringum landið, þó aðeins sé hún þekkt frá einum stað á Norðurlandi. Á nokkrum stöðum á Suðausturlandi hafa kampaskottur fundist langt inni í landi, þar sem eru fornar sjávarstrendum frá lokum ísaldar.

Stökkskottur eru samlitar klöppum og steinum þar sem þær kalda sig. Þær leynast gjarnan inni í rökum glufum þar sem þær eru taldar nærast á þörungum. Því ber gjarnan lítið á þeim, en stundum má sjá þær skjótast örsnökkt á milli glufa.

Kampaskotta (Petrobius brevistylis)

ARCHAEOGNATHA

Machilidae

Petrobius brevistylis Carpenter, 1913 Kampaskotta

 

  • Grein um stökkskottur (pdf-skjal)



Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Íslenska fánan > Skordýr > Ættbálkar skordýra > Stökkskottur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica