Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Grasvefari (Eana osseana) í Surtsey, algengasta fiðrildi Íslands. © Erling Ólafsson

Vogvængjur (Odonata)

Vogvængjur deilast í tvo undirættbálka, drekaflugur (Anisoptera) og glermeyjar (Zygoptera). Vogvængjur eru stór skordýr, með stór augu og tvö pör af löngum vængjum með þéttriðnu æðaneti. Þær geta ekki lagt vængina að bolnum þegar þær sitja. Drekaflugur halda vængjunum láréttum út frá bolnum en glermeyjar leggja þá saman yfir bolnum þannig að snertiflötur vængjanna liggur lóðréttur. Á drekaflugum er munur á fram- og afturvængjum, en þeir eru nánast eins á glermeyjum.

Gyðlur bæði drekaflugna og glermeyja lifa í vatni og eru þar rándýr, þ.e. vDrekaflugaeiða önnur dýr sér til matar. Fullorðin dýr eru einnig rándýr. Drekaflugur eru fimar á flugi og veiða gjarnan bráð sína á flugi en glermeyjar láta sér yfirleitt nægja að veiða smærri sitjandi skordýr.

Vogvængjur á Íslandi

Á Íslandi lifa hvorki drekaflugur né glermeyjar. Ein tegund drekaflugna, Hemianax ephippiger, hefur þó borist hingað í nokkur skipti með vindum frá N-Afríku eða löndum fyrir botni Miðjarðarhafs. Glermeyjar hafa borist til landsins með varningi, t.d. skrautfiskafóðri.

 

Drekaflugan Hemianax ephippiger

ODONATA

Aeshnidae

Hemianax ephippiger (Burmeister, 1839)




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Íslenska fánan > Skordýr > Ættbálkar skordýra > Vogvængjur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica