Vorflugur (Trichoptera)
Vorflugur eru meðalstór eða frekar stór skordýr með nokkuð mjúkan búk, oftast einlitar gul- eða grábrúnar. Á höfði eru langir þráðlaga, margliðskiptir fálmarar, áberandi augu og munnur sem líkist bitmunni þó eiginlega kjálka vanti. Hærðir vængir mynda risþak yfir bolnum í hvíldarstöðu, afturvængir mun breiðari en framvængir.
Vorflugur líkjast fiðrildum enda eru þessir tveir ættbálkar náskyldir. Þær hafa
þó ekki hreistraða vængi og munnlimir mynda ekki sograna. Fullorðin dýr nærast einkum á blómasafa. Á æskustigum lifa vorflugur í vatni. Lirfurnar byggja um sig pípulaga hýði úr plöntuleifum eða sandi sem ver viðkvæman búkinn. Þær éta lifandi og dauðar vatnaplöntur og þörunga.
Vorflugur á Íslandi
Á Íslandi hafa fundist 12 tegundir vorflugna, sem tilheyra þremur ættum. Þær lifa ýmist í straumvatni eða lygnum tjörnum og vötnum. Flestar tegundanna eru algengar og útbreiddar um land allt. Þrátt fyrir heitið eru vorflugur mest áberandi á flögri er líða tekur á sumar.
Glæsibytta (Limnephilus elegans)
TRICHOPTERA
Apataniidae
Apatania zonella (Zetterstedt, 1840) Lækjabytta
Limnephilidae
Grammataulius nigropunctatus (Retzius, 1783) Flóðbytta
Limnephilus affinis Curtis 1834 Lindabytta
Limnephilus decipiens (Kolenati, 1848) Sefbytta
Limnephilus elegans Curtis, 1834 Glæsibytta
Limnephilus fenestratus (Zetterstedt, 1840) Flikrubytta
Limnephilus griseus (Linnaeus, 1758) Grábytta
Limnephilus picturatus McLachlan, 1875 Tjarnabytta
Limnephilus sparsus Curtis, 1834 Sytrubytta
Micropterna lateralis (Stephens, 1837)
Potamophylax cingulatus (Stephens, 1837) Straumbytta
Phryganeidae
Agrypnia picta Kolenati, 1848 Starbytta

