Spendýr

Á Íslandi er aðeins ein upprunaleg tegund landspendýra, þ.e. refurinn. Auk þess sem hvítabirnir hafa öldum saman borist hingað á eigin forsendum. Aðrar tegundir eru innfluttar, ýmist viljandi Minkur(hreindýr, minkur) eða óviljandi (hagamús, húsamús, brúnrotta, svartrotta). Er þá hefðbundnum húsdýrum sleppt.

Á árunum 1978-1983 tók Náttúrufræðistofnun að sér umfangsmiklar rannsóknir á hreindýrum í tengslum við ráðgerðar virkjunarframkvæmdir á Eyjabökkum. Annars hefur stofnunin ekki haft sérfræðinga á sínum snærum til rannsókna á spendýrum. Slíkar rannsóknir eru nú stundaðar á öðrum stofnunum, s.s.

Fána sjávarspendýra er öllu ríkulegri. Þar skal telja tvær tegundir sela (landselur, útselur) sem kæpa hér að staðaldri, auk fjögurra selategunda (hringanóri, vöðuselur, blöðruselur, kampselur) og rostungs sem slæðast hingað úr norðri. Í bókinni Íslensk spendýr (Vaka-Helgafell 2004) er ítarleg umfjöllun um tegundirnar (tegundaskrá).

Alls hefur verið staðfest að 23 tegundir hvala hafi sést á Íslandsmiðum. Á Náttúrufræðistofnun Íslands hefur verið haldið markvisst til haga upplýsingum um hvali sem hér hafa sést. Í bókinni Íslensk spendýr er sömuleiðis ítarleg umfjöllun um tegundir hvala (tegundaskrá). Annars hefur rannsóknum á hvölum og selum verið sinnt á annarri vígstöð:



 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: