2004
Uppruni tegundanna er ekki forngripur
Þróunarkenning Darwins á íslenskri bók
![]() |
| Guðmundur Guðmundsson |
Guðmundur segir svörin hafa breyst en viðfangsefnin séu þau sömu. "Darwin er nokkuð glöggur á að skilgreina úrlausnarefnin. Svörnin sem hann veitir eru í takt við nútímaskilning á eðli fyrirbærisins sem hann fjallar um. Uppruni tegundanna er því ekki forngripur í þeim skilningi að þetta sé úreltur, gamall texti. Þetta er bók sem almenningur getur auðveldlega lesið sér til gagns og fengið yfirlit yfir líffræðina og viðfangsefni hennar."
Ítarlegur inngangur
Örnólfur Thorlacius fyrrverandi rektor ritar ítarlegan inngang um Darwin og rannsóknir hans. Þar segir frá tilurð og afdrifum kenninga hans en segja má að fáar bækur hafi haft jafn mikil áhrif á hugmyndaheim Vesurlanda og einmitt þessi bók. Kenningar Darwins urðu strax mjög umdeildar bæð meðal líffræðinga en ekki síður meðal guðfræðinga sem margir hverjir sáu í þeim ógn við stöðu mannsins sem kórónu sköpunarverksins. Örnólfur rekur þessa sögu alla eins og honum einum er lagið.
Finkur Darwins
Í innganginum segir Örnólfur Thorlacius m.a. frá því þegar Darwin bauðst að sigla með HMS Beagle umhverfis hnöttinn en ferðin tók fimm ár. Á Galápagos eyjaklasanum í Kyrrahafi kynntist Darwin finkunum sem síðar eru við hann kenndar. Hver tegund lifir aðeins á einni eyju en Darwin taldi að þær væru upprunalega allar af sömu tegund en hefðu sérhæfst og þróast vegna einangrunar og ólíkrar fæðu. Samkeppni um fæðu hefði ráðið þróunarbraut þeirra.
Byggt á 1. útgáfu verksins
Uppruni tegundanna af völdum náttúrulegs vals, eða að sumum stofnum vegnar betur en öðrum í lífsbaráttunni kom fyrst út í London 12. nóvember 1859 í 1250 eintökum sem seldust upp á einum degi. Í ársbyrjun 1860 kom 2. útgáfan út í miklu stærra upplagi og víða um heim. Útgáfurnar sem Darwin sjálfur kom að urðu sex, sú síðasta á árinu 1871. Þýðing Guðmundar byggir á frumútgáfunni, en þær breytingar sem Darwin gerði fyrir aðra útgáfu og voru e.k. viðbrögð við harkalegri gagnrýni á þróunarkenningu hans, eru sýndar neðanmáls í íslensku útgáfunni.
Sögulegt yfirlit og bréf Wallace í viðaukum
Þróunarkenning Darwins sem lýst er í Uppruna tegundanna umbylti heimsmynd alþýðu og vísinda fyrir 145 árum. Sjálfur kallaði Darwin verkið "útdrátt" og ætlaði sér að skrifa langtum lengra og ítarlegra mál til stuðnings kenningu sinni en af því varð ekki. Í þriðju og síðari útgáfum birti Darwin sögulegt ágrip af hugmyndinni um að tegundir gætu breyst og er það birt í viðauka 1. Bréf Alfred Russel Wallace frá 1858 þar sem hann útlistar fyrir Darwin sömu kenningar um það hvernig náttúrulegt val á sér stað og varð kveikjan að því að Darwin lét verða af því að skrifa Uppruna tegundanna, er einnig birt í íslenskri þýðingu í viðauka 2.
Uppruni tegundanna kemur út í bókaröðinni Lærdómsrit Bókmenntafélagsins. Þýðingarsjóður og Menningaráætlun Evrópusambandsins styrktu þýðingu og útgáfu verksins.
Bókin er 702 bls. í tveimur bindum í öskju og er leiðbeinandi verð 5.900 kr.
![]() |
![]() |
| Charles Robert Darwin f. 12. febrúar 1809, d. 19. apríl 1882. | Herskipið Beagle sem Darwin ferðaðist með í fimm ár. |





