Beint í leiðarkerfi vefsins.
Bergþór Jóhannsson mosafræðingur var jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 19. desember kl. 15. Bergþór lést 10. desember s.l., tæplega 73 ára að aldri. Bergþór var starfsmaður Náttúrufræðistofnunar Íslands frá árinu 1964 þar til hann lét af starfi fyrir aldurs sakir á árinu 2003. Hann vann þó áfram við rannsóknir sínar eftir það meðan heilsan leyfði.
Nú á aðventunni má búast við að flestir veiðimenn verki rjúpur sem þeir skutu í haust og eru þeir hvattir til að senda Náttúrufræðistofnun annan vænginn af hverjum fugli til að sem áreiðanlegastar niðurstöður fáist um aldurshlutföll í rjúpnaaflaum í haust. Markmiðið er að ná um 500 fuglum úr hverjum landshluta, en nokkru færri vængir hafa borist en 2005 og endurspeglar það væntanlega minni veiði.
Lesa meiraGoði Hólmar Gíslason vann til verðlauna Náttúrufræðistofnunar á Vísindavöku RANNÍS í september 2006. Goði komst næst því að giska rétt á fjölda holugeitunga í krukku, en þeir voru teknir úr búi í Kópavogi í lok ágúst.
130 manns skiluðu inn tillögum og var Goði getspakastur: giskaði á 1438 geitunga, en þeir voru 1380. Enginn komst nær réttri tölu. Goði Hólmar sem verður sex ára 6. október n.k kom ásamt systur sinni og föður til að taka við verðlaununum úr hendi Erlings Ólafssonar skordýrafræðings.
Lesa meiraMörg hundruð manns heimsóttu bás Náttúrufræðistofnunar Íslands á Vísindavöku í september. Þar kynnti stofnunin starfsemi sína og geitungarannsóknir og vöktu flugurnar og búin sem þar voru til sýnis mikla athygli gesta. Í básnum voru einnig veggspjöld þar sem landnám og lífsferill geitunganna var rakinn sem og ljósmyndir á veggjum og skjá.