Beint í leiðarkerfi vefsins.
Náttúrufræðistofnun hvetur rjúpnaskyttur til að klippa annan vænginn af rjúpum sem þær hafa veitt og senda stofnuninni. Af vængjunum má ráða hvort um er að ræða fugl á fyrsta ári eða eldri fugl. Fuglum af sama veiðisvæði eða úr sömu sveit þarf að halda saman í poka þannig að hægt sé að sundurgreina sýnin eftir landshlutum.
Nýlega kom út bókin „Effects of afforestation on ecosystems, landscape and rural development". Ritstjórar bókarinnar eru Guðmundur Halldórsson, Edda S. Oddsdóttir og Bjarni Diðrik Sigurðsson. Bókin er unnin í samvinnu sérfræðinga frá Danmörku, Færeyjum, Íslandi, Noregi og Svíþjóð og er gefin út á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar í svokallaðri TemaNord ritaröð. Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands tóku þátt í verkinu sem tengist samvinnuverkefninu SKÓGVIST sem hófst árið 2002.