Náttúrufræðistofnun Íslands
Lundi - Puffin (Fratercula arctica). © Anette Th. Meier
Fréttir

Að spyrja Náttúruna - Saga Náttúrugripasafnsins

27.3.2009

Á morgun, 28. mars, fagnar Þjóðmenningarhúsið aldarafmæli sínu. Af því tilefni opnar sýning Náttúrufræðistofnunar „Að spyrja Náttúruna - Saga Náttúrugripasafnsins“ í húsinu. Sýningin segir sögu safnsins frá því það var stofnsett árið 1889 þar til því var lokað tímabundið fyrir almenningi árið 2008. Blómaskeið safnsins var á fyrstu áratugum 20. aldar þegar það var til húsa í Þjóðmenningarhúsinu, sem þá hét Safnahúsið.

Á sýningunni er að finna upplýsingar um sögu safnsins, frumkvöðla að stofnun þess og forstöðumenn, ásamt því að þar er að finna ýmsa náttúrugripi og aðra muni úr sögu safnsins, s.s. geirfugl, tígrisdýr, silfurberg, gróðursýni og apa.

 

Séð yfir hluta af sýningarsal Náttúrugripasafnsins eins og hann leit út á fyrstu tímum safnsins í Safnahúsinu við Hverfisgötu Benedikt Gröndal forstöðumaður HÍN 1889 - 1900
Séð yfir hluta af sýningarsal Náttúrugripasafnsins eins og hann leit út á fyrstu tímum safnsins í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Salurinn var opnaður árið 1908 og þarna má sjá ýmsa náttúrugripi, bæði úr jurta- og dýraríkinu. Ljósm. August Hesselbo, 1914. Benedikt Gröndal var fyrsti formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags og fyrsti forstöðumaður Náttúrugripasafnsins.

 

Dílafroskur Tígrisdýr
Á sýningunni er að finna fjöldann allan af gripum úr sögu safnsins, m.a. þennan dílafrosk.
Ljósm. Anette Th. Meier.
Einn eftirminnilegasti gripurinn sem til sýnis var í Náttúrugripasafninu á tímum þess í Safnahúsinu er tígrisdýrið. Það er komið aftur í húsið á sýninguna. Ljósm. Anette Th. Meier.

 

Þjóðmenningarhúsið er opið alla daga milli kl. 11 og 17 og ókeypis er á miðvikudögum.

Upplýsingar um nýjar sýningar í Þjóðmenningarhúsinu er að finna á vef hússins.

 

 



Senda grein


Efra hliðarval


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica