Beint í leiðarkerfi vefsins.
Rjúpnatalningar Náttúrufræðistofnunar Íslands nú í vor benda til þess að uppsveifluskeið sem hófst á austanverðu landinu á síðasta ári nái nú til alls landsins. Eftir tveggja ára stofnvöxt eru rjúpur að verða algeng sjón í varplöndum um Norður- og Austurland. Meðalaukning 2008/2009 var um 25%. Venjulega hafa fyrri uppsveifluskeið varað í fjögur til fimm ár. Miðað við þær forsendur má búast við að stofninn nái hámarki á árunum 2011 og 2012. Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins mun liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á varpárangri rjúpna, afföllum 2008/2009 og veiði 2008.
Lesa meiraUm miðjan maí upphófst mikill straumur þistilfiðrilda (Vanessa cardui) frá Suður-Evrópu norður eftir álfunni. Svo mikill var fjöldinn að menn höfðu aldrei fyrr orðið vitni að öðru eins. Náttúrufræðistofnun Íslands barst tilkynning um þennan einstaka atburð 26. maí með ósk um að fylgst yrði með því hvort og þá hvenær fiðrildin myndu ná hér landi. Nú eru þau sem sagt mætt til leiks.
Lesa meira