Hrafnaþing 10. febrúar: Flokkun og verndargildi jarðminja á háhitasvæðum á Íslandi
05.02.2010
Kristján Jónasson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, flytur erindi sitt og Sigmundar Einarssonar „Flokkun og verndargildi jarðminja á háhitasvæðum á Íslandi“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 10. febrúar næstkomandi. 
Verið velkomin á Hrafnaþing!
Erindið verður flutt miðvikudaginn 10. febrúar milli kl. 12.15 og 13 í sal söngskólans Domus Vox að Laugavegi 116, 2. hæð (sjá kort).
Allir velkomnir á Hrafnaþing!
Frekari upplýsingar um erindið „Flokkun og verndargildi jarðminja á háhitasvæðum á Íslandi“
Skýrsluna „Jarðminjar á háhitasvæðum Íslands. Jarðfræði, landmótun og yfirborðsummerki jarðhita“ (höf: Kristján Jónasson og Sigmundur Einarsson) má nálgast á vef stofnunarinnar, ásamt kortahefti.