Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í eldgosum, eða í kjölfar þeirra, myndast ýmiss konar útfellingar. Þessar eldfjallaútfellingar mynda skánir á yfirborði hrauna, í hraunhellum eða við gígop. Flestar útfellinganna verða til beint úr hraunkvikugasi sem streymir út um op í kólnandi berginu. Útfellingasteindirnar ralstónít, „HD“ og thenardít eru meðal þeirra tegunda sem myndast hafa á hrauni sem rann í Fimmvörðuhálsgosinu.
Lesa meira
Á undanförnum árum hafa allmargir nýliðar bæst við smádýrafánu landsins og á hlýnandi loftslag þar að öllum líkindum umtalsverðan þátt. Fæstar þeirra vekja athygli almennings enda skaðlausar og hverfa í hópinn sem fyrir er. Aðrar vekja meiri athygli ýmist vegna þess að þær eru ólíkar tegundum sem við eigum að venjast eða fyrir að vera óþokkar og valda skaða og leiðindum. Rauðhumla er nýliði sem sker sig úr hópnum fyrir sérstakt útlit en hún verður seint talin til óþokkanna.
Lesa meira
Að frumkvæði umhverfisráðuneytisins verður efnt til ráðstefnu í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands um votlendi og endurheimt þess. Titill ráðstefnunnar er Endurheimt votlendis - hvað þarf til? Ráðstefnan er haldin í tilefni alþjóðlegs árs líffræðilegrar fjölbreytni og í ljósi vaxandi umræðu um mikilvægi votlendis í loftslagsbreytingum.
Lesa meira
Út er komið nýtt Fjölrit Náttúrufræðistofnunar „Gömlu íslensku steinasöfnin í Geologisk Museum í Kaupmannahöfn“, en ritið er það 53. í röðinni. Höfundur þess er Sveinn P. Jakobsson.
Lesa meira