Beint í leiðarkerfi vefsins.
Rannsóknir Náttúrufræðistofnunar Íslands á hræjum friðaðra fugla sem fundist hafa á undanförnum árum sýna að fleiri en fimmti hver örn og fjórði hver fálki sem fundist hafa dauðir hafa verið skotnir. Þetta virðingarleysi fyrir landslögum kemur á óvart, en báðar þessar tegundir eru á válista og stranglega friðaðar, örninn frá 1914 og fálkinn frá 1940. Löggjöf um varðveislu og uppstoppun friðaðra fugla og verslun með þá er gölluð og því er erfitt að koma böndum á þessa ólöglegu iðju. Rótgróin óvild fámenns hóps í garð arnarins á hér einnig hlut að máli og fégræðgi þeirra sem höndla með friðaða fugla.
Fjöldi frjókorna í apríl og maí losaði 2000 frjó/m3 sem er það hæsta sem mælst hefur í Reykjavík. Birkifrjó hafa ekki verið fleiri síðan vorið 2006. Á Akureyri var mun minna um frjókorn enda tíðarfar fremur svalt. Hámark birkifrjóa þar verður nú í byrjun júní en ekki í maí eins og undanfarin ár. Framundan er frjótími grasa, túnsúru og hundasúru. Í júní eru frjótölur oftast lágar en geta farið yfir 10 þegar kemur fram í miðjan mánuðinn. Á stöðum þar sem gras er látið óslegið og það fær að blómgast og vaxa úr sér verða frjótölur þó mun hærri en mælingar sýna. Á Íslandi er grasofnæmi algengasta frjóofnæmið.
Lesa meira
Nýleg frétt um rauðhumlu, athyglisverðan nýjan landnema, hefur vakið umtalsverða athygli og fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum. Í ljós hefur komið að málið er flóknara en gefið hefur verið til kynna. Rauðu humlurnar hafa reynst tilheyra tveim tegundum sem eru afar líkar í útliti. Auk rauðhumlu er ryðhumla einnig mætt til leiks sem nýr landnemi.
Lesa meira