Beint í leiðarkerfi vefsins.
Tungljurt, járnsmiður og silfurrani eru meðal nýrra landnema í Surtsey og sjávarrof meitlar stöðugt af eynni þannig að talsverðar breytingar hafa orðið á norðurtanga eyjarinnar síðast liðið ár. Þetta er meðal niðurstaðna vísindamanna Náttúrufræðistofnunar sem fóru í sinn árlega rannsóknaleiðangur dagana 18.-21. júlí s.l.
Lesa meira
Vel heppnuð rannsóknarferð á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands og Landbúnaðarháskóla Íslands var farin í Esjufjöll í Breiðamerkurjökli dagana 6.-9. júlí síðastliðinn. Esjufjöll rísa hæst í rúmlega 1600 m hæð í ofanverðum Breiðamerkujökli. Þau samanstanda af fjórum fjallsrönum sem stefna suðvestur-norðaustur, Vesturbjörg, Skálabjörg, Esjubjörg og Austurbjörg, og hafa líklega verið íslaus síðan síðasta kuldaskeiði ísaldar lauk.
Lesa meiraHeildarfjöldi frjókorna í júní reyndist sá langhæsti til þessa, 3119 frjó í rúmmetra (meðaltalið fyrir júní er 750 frjó í rúmmetra). Birkifrjó voru lang algengust eins og oftast í júní, eða tæplega 2000. Þau hafa aldrei verið fleiri og tímabil birkifrjóa hefur aldrei verið jafn langdregið, hófst um 20 maí og enn eru birkifrjó að mælast.
Lesa meira