Beint í leiðarkerfi vefsins.
Náttúrufræðistofnun Íslands óskar dr. Friðgeiri Grímssyni steingervingafræðingi til hamingju með veglegan styrk sem hann hlaut í byrjun mars frá austurríska rannsóknasjóðnum, Austrian Science Fund. Styrkurinn nemur rúmlega 52 milljónum króna og er ætlaður til rannsókna á 65–54 milljón ára gömlum plöntusteingervingum á Grænlandi og í Færeyjum.
Lesa meira
Ársfundur Náttúrufræðistofnunar var haldinn í 19. sinn föstudaginn 23. mars s.l. í húsnæði stofnunarinnar að Urriðaholtsstræti í Garðabæ. Fundurinn var vel sóttur, þar voru haldin ávörp og erindi um ýmis verkefni sem unnið hefur verið að á stofnuninni. Þá var heiðursviðurkenning Náttúrufræðistofnunar veitt í þriðja skipti.
Lesa meira
Borgþór Magnússon plöntuvistfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands mun á næsta Hrafnaþingi, miðvikudaginn 28. mars, flytja erindi sitt Gróðurframvinda í lúpínubreiðum endurmetin.
Lesa meira
Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands verður haldinn í húsnæði stofnunarinnar að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ föstudaginn 23. mars kl. 13:15 – 19:00.
Lesa meira
Pödduvef Náttúrufræðistofnunar var hleypt af stokkunum 14. ágúst 2009 og voru þá kynntar til sögu 80 tegundir. Síðan hafa bæst við tegundir jafnt og þétt og var 250 tegunda markinu náð nú um miðjan mars. Vefurinn hefur sannað gildi sitt því á degi hverjum er hann heimsóttur af fjölda notenda og oft heyrist til hans vitnað.
Lesa meira
Kristján Jónasson jarðfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands mun á næsta Hrafnaþingi, miðvikudaginn 14. mars, fjalla um endalok tertíertímabilsins.
Lesa meiraFáum dettur frjókorn í hug nú í byrjun Góu. Hins vegar hefur hlýr febrúarmánuður dugað kínverska elrinu í Grasagarðinum til að opna og teygja úr karlreklunum sem nú hanga niður, þannig að vindur hefur greiðan aðgang að frjóhirslum og þar með geta frjókornin dreifst út í andrúmsloftið.
Lesa meira