Ekki mælt með hreindýrabúskap

Starfshópur um hreindýraeldi mælir ekki með því að tekið verði upp hreindýraeldi eða stórfelldur hreindýrabúskapur hér á landi ef á sama tíma eigi að standa vörð um villtan stofn hreindýra í landinu. Þetta kemur fram í skýrslu sem hópurinn afhenti Sigrúnu Magnúsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, á dögunum.

Hreindýrin á Íslandi. Skýrsla starfshóps um hreindýraeldi.

Kápa skýrslunnar „Hreindýrin á Íslandi“

Í febrúar 2014 skipaði umhverfis- og auðlindaráðherra starfshóp um hreindýraeldi og var honum falið að draga fram þau atriði sem gætu skipt máli fyrir villt hreindýr hér á landi, verndun þeirra og veiðar, búfjársjúkdóma og landbúnað og landnýtingu. Fulltrúi Náttúrufræðistofnunar Íslands í hópnum var Trausti Baldursson.

Starfshópurinn hefur nú skilað skýrslu um hugmyndir um hreindýraeldi og hreindýraræktun sem nýja búgrein á Íslandi. Þar kemur meðal annars fram að veruleg hætta sé á aukinni tíðni og útbreiðslu sjúkdóma, einkum í tengslum við hættuna á samgangi eldisdýra við villt dýr og annan bústofn. Bent er á að hreindýraeldi sé þess eðlis að því fylgi óhjákvæmilega umtalsverð breyting á landnýtingu sem hefur takmarkandi áhrif á aðra landnotkun. Aðgengi almennings að landinu myndi einnig skerðast vegna nauðsynlegra girðinga, sem þurfa að vera verulega háar og ná yfir stór svæði eigi þær að þjóna tilgangi sínum.

Hópurinn telur að ef bornir eru saman kostirnir sem felast annars vegar í að viðhalda villtum hreindýrastofni og nýtingu hans eins og hún er í dag og hins vegar að heimila hreindýraeldi með óvissu um áhrif þess á náttúru landsins, þar með talið á hreindýrastofninn sjálfan og aðra þætti lífríkisins, sé farsælast að viðhalda núverandi sjálfbærri nýtingu og verndun villtra hreindýra á Íslandi.