Rjúpnatalningar 2015

Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2015 er lokið. Samandregið fyrir öll talningasvæði var meðalfjölgun rjúpna 8% á milli áranna 2014 og 2015.

Stofnbreytingar voru mismunandi eftir landshlutum og aðeins á Norðausturlandi og Suðurlandi var aukning, í öðrum landshlutum fækkaði rjúpum eða stofninn stóð í stað. Reglubundnar sveiflur í stofnstærð sem taka 10 til 12 ár hafa einkennt íslenska rjúpnastofninn. Þessar sveiflur hafa breyst í kjölfar friðunar 2003 og 2004 og samdráttar í veiði frá 2005 og er nú mun styttra milli hámarka en áður. Í sögulegu samhengi er rjúpnafjöldinn 2015 undir meðallagi alls staðar nema á Norðausturlandi og Austurlandi. Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins og nánari greining á ástæðum fjölgunar munu liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á varpárangri rjúpna, afföllum 2014 til 2015 og veiði 2014.

Fréttatilkynning (pdf)