Náttúrufræðistofnun nýtur trausts meðal landsmanna

Landsmenn bera mikið traust til Náttúrufræðistofnunar Íslands samkvæmt könnun Capacent sem gerð var í febrúar síðastliðnum. Samkvæmt henni nýtur stofnunin mikils trausts 56% landsmanna.

56% bera mikið traust til Náttúrufræðistofnunar Íslands

56% bera mikið traust til Náttúrufræðistofnunar

Náttúrufræðistofnun nýtur svipaðs trausts og Embætti forseta Íslands og Háskóli Íslands

Náttúrufræðistofnun nýtur svipaðs trausts og Embætti forseta Íslands og Háskóli Íslands

Stofnunin hefur tekið þátt í sömu könnun síðan 2007, að árinu 2013 undanskildu, og er hún áfram meðal þeirra stofnanna sem nýtur hvað mest trausts. Markmiðið með könnuninni er að kanna traust almennings til Náttúrufræðistofnunar og þróun á því, auk samanburðar við aðrar stofnanir.

Náttúrufræðistofnun Íslands nýtur mikils trausts 56% landsmanna, þar af bera um 7% fullkomið traust til stofnunarinnar, 23% mjög mikið traust og 26% frekar mikið traust. Þetta er heldur meira traust en mældist árið 2015 en þá naut stofnunin mikils traust tæplega 55% landsmanna. Hlutlausum fjölgaði milli ára, úr 33% upp í 38%. Aðeins 6% bera lítið traust til stofnunarinnar, þar af eru 3% sem bera frekar lítið traust til hennar, 2% mjög lítið og 1% alls ekkert traust.

Í samanburði við aðrar stofnanir kemur Náttúrufræðistofnun ágætlega út. Hún er fyrir ofan meðaltalið og er á róli með Umboðsmanni Alþingis og Háskóla Íslands.