Refastofninn stendur í stað

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur lokið við að meta stærð íslenska refastofnsins til ársins 2015. Samkvæmt því var fjöldi refa haustið 2015 að lágmarki 7.000 dýr. Niðurstöðurnar styðja eldra mat frá árinu 2014 sem sýndi fram á mikla fækkun í stofninum eftir 2008.

Refastofninn var í sögulegu hámarki á árunum 2005–2008 þegar hann taldi um 11 þúsund dýr að haustlagi ár hvert. Stofnmat frá árinu 2014 sýndi hins vegar fram á 30% fækkun refa á árunum 2008–2010. Nýja stofnmatið sýnir að dýrunum hélt áfram að fækka til ársins 2012 þegar stofninn náði lágmarki, um 6.000 dýr að hausti, en þá hafði stofninn minnkað um 40% frá 2008. Stærð stofnsins virðist ekki hafa breyst að ráði til ársins 2015.

Rannsóknir Náttúrufræðistofnunar Íslands á íslenska refastofninum byggjast að miklu leyti á góðu samstarfi við veiðimenn um allt land sem senda hræ af felldum dýrum til krufninga og aldursgreininga. Kann stofnunin þeim bestu þakkir fyrir. Þeir sem eru áhugasamir um að leggja sitt af mörkum til að halda vöktuninni áfram og gera hana sem vandaðasta eru hvattir til að kynna sér upplýsingar um meðferð og sendingu á hræjum.

Fréttatilkynning Náttúrufræðistofnunar Íslands