Lífríki í Hornvík kannað

Refir

Refir eru harðgerð dýr og virtist lífið ganga með besta móti hjá þeim flestum. Snjókoma var flesta daga og því kafdjúpt fyrir lágfótur að vaða lausamjöllina. Þær létu það þó ekki trufla sig, gengu í fjörur og tíndu upp ferskan fiskinn, báru hann upp á sjávarkamb og grófu hér og hvar í snjónum. Ein læða hafði fyrir því að draga um 40 cm langan steinbít upp á bjarg og sást til hennar efst í Miðdal þar sem hún svaf á fengnum. Eftir góðan lúr vaknaði hún, hristi af sér snjóinn og fékk sér vænan bita af fiskinum áður en hún hélt áfram lengra upp, nær bjargbrúninni. Einhverjir refir voru í tilhugalífi og ef allt gengur að óskum má eiga von að nokkur pör verði með got í vor, ólíkt því sem gerðist sumarið 2019 þegar yrðlingar voru aðeins á um 25% óðala í Hornbjargi (skýrsla NÍ-20001).

Fuglar

Ekki var að sjá að bjargfugl væri kominn að landi í einhverjum mæli að fýl undanskildum. Þegar lægði einn daginn, birti til og hlánaði komu stórir hópar af ritu inn í Hornvík. Þegar tók að hvessa á ný og snjóa daginn eftir voru þær farnar aftur. Á heimleið þann 25. mars sáust nokkrar langvíur á sjónum utan við Hælavíkurbjarg en þar eru oft hundruð, jafnvel þúsund fuglar á þessum árstíma. Þegar rýnt var með fjarsjá inn í skorur í bjarginu sáust þó nokkrir svartfuglar híma þar í skjóli fyrir rokinu.

Að Horni voru nokkrir hrafnar og sáust þeir flestir 14 saman við Skipaklett, við sömu iðju og refirnir, að tína í sig nýmetið sem rak á fjörur þeirra. Nokkrir sendlingar voru einnig í fjörunni og létu brimið lítið trufla sig. Ríflega hundrað æðarfuglar sáust á víð og dreif á sjónum, þrír æðarkóngar þar á meðal, tugir hávellna, nokkrar teistur og toppendur.  Hvítmáfar kroppuðu í krossfiska sem rak á land í briminu og stöku svartbakar sáust líka. Við húsin að Horni héldu til ríflega 20 snjótittlingar og einn fálki sást á flugi.

Selir

Nokkrir útselir sáust í sjónum meðan mestu brimskaflarnir gengu yfir og síðar voru landselir að reka upp hausinn af og til en einn þeirra lagði sig á steini við Horná.