Náttúrufræðistofnun Íslands kemur vel út í könnun um stofnun ársins 2020

Sameyki, stéttarfélag í almannaþjónustu, hefur tilkynnt um val á stofnun ársins 2020 en titlana Stofnun ársins og Fyrirmyndarstofnun hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr að mati starfsmanna í könnun félagsins. Stofnanir ársins 2020 eru Norðlingaskóli, Aðalskrifstofa Akraneskaupstaðar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og Jafnréttisstofa. Náttúrufræðistofnun Íslands kemur vel út í könnuninni og er í sjötta sæti stórra stofnana.

Könnunin er stærsta vinnumarkaðskönnun sem gerð er hér á landi og náði hún til um 12 þúsund starfsmanna í opinberri þjónustu hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögunum og sjálfseignarstofnunum. Hún er unnin í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneyti og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á vinnumarkaði. Í henni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Markmiðið með að velja fyrirmyndarstofnanir er að hvetja stjórnendur til að gera vel í starfsmannamálum og að auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum.