Frjómælingar í júní

Á Akureyri var júní kaldur, einkum um miðjan mánuðinn. Þrátt fyrir það var heildarfjöldi frjókorna sá mesti frá árinu 2005 eða 1.322 frjó/m3 (meðaltalið er 695 frjó/m3). Frjókorn voru samfellt í lofti allan mánuðinn og greindust 19 frjógerðir. Mest var af birkifrjóum (813 frjó/m3), furufrjóum (180 frjó/m3), grasfrjóum (152 frjó/m3) og víðifrjóum (52 frjó/m3). 

Júnímánuður var einnig kaldur á höfuðborgarsvæðinu, sá kaldasti síðan 1997, auk þess sem sólskinsstundir voru færri en oft áður. Heildarfjöldi frjókorna bar þess merki og hafa frjókorn aðeins einu sinni áður mælst svo fá í þessum mánuði síðan mælingar hófust í Garðabæ. Frjókorn voru þó samfellt í lofti allan mánuðinn, heildarfjöldi þeirra var 415 frjó/m3 (meðaltalið er 1.282 frjó/m3) og alls greindust 15 frjógerðir. Mest var af grasfrjóum (150 frjó/m3), furufrjóum (106 frjó/m3) og birkifrjóum (94 frjó/m3) en ekki hafa mælst jafn fá birkifrjó á höfuðborgarsvæðinu í 25 ár.

Frjótíma birkis er nú lokið norðan og sunnan heiða og frjótími grasa tekinn við. Aðalfrjótími grasa er í júlí og ágúst. 

Fréttatilkynning um frjómælingar júní 2021 (pdf)

Nánar um frjómælingar