Eyþór Einarsson grasafræðingur látinn

Eyþór Einarsson grasafræðingur lést þriðjudaginn 24. nóvember 2021, 92 ára að aldri. Hann verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í Reykjavík miðvikudaginn 1. desember. Eyþór starfaði alla sína starfsævi hjá Náttúrufræðistofnun Íslands þar til hann lét af störfum vegna aldurs árið 1999.

Eyþór fæddist árið 1929 í Neskaupsstað. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1949, cand.phil. frá Háskóla Íslands 1950 og mag.scient.-prófi í náttúrufræði frá háskólanum í Kaupmannahöfn 1958. Eftir nám fluttist Eyþór aftur heim til Íslands og hóf störf sem deildarstjóri grasafræðideildar Náttúrufræðistofnunar Íslands frá 1. janúar 1959 og var forstöðumaður stofnunarinnar í samtals 14 ár.

Á starfsferli sínum, allt frá 1955, vann Eyþór við rannsóknir á æðplöntum, plöntulandafræði og gróðurfari Íslands, einkum til fjalla. Hann lagði grunn að rannsóknum sem hófust árið 1961 á landnámi plantna og framvindu gróðurs í jökulskerjum í Vatnajökli og hann var einnig frumkvöðull að gróðurrannsóknum í Skaftafelli í Öræfum þar sem gróður hefur verið vaktaður síðan Skaftafell varð Þjóðgarður og beit hætti. Til viðbótar þessu fékkst hann við rannsóknir á sviði náttúruverndar, einkum hvað snertir hugsanlegar breytingar á flóru og gróðurfari af völdum verklegra framkvæmda. Á starfsævinni tók Eyþór þátt í mörgum rannsóknarleiðöngrum, sótti fjölda alþjóðlegra funda erlendis um grasafræði og náttúruverndarmál og flutti fyrirlestra um gróður Íslands og náttúruvernd víða um heim. Einnig var Eyþór stundakennari við Háskóla Íslands um nokkurt skeið.

Eyþór sat í Náttúruverndarráði í 31 ár, frá 1. janúar 1959. Hann var varaformaður 1972–1978 og formaður 1978–1990. Hann var varaformaður stjórnar raunvísindadeildar Vísindasjóðs 1974–1978 og formaður 1978–1986. Eyþór var fulltrúi Íslands í náttúruverndarnefnd Evrópuráðsins frá stofnun árið 1963 til ársins 1993 og formaður 1985–1986. Að auki átti hann sæti í ýmsum nefndum um fræðslu og rannsóknir á sviði náttúruvísinda og náttúruverndar, hvoru tveggja heima og erlendis, meðal annars á vegum Evrópuráðs og Norðurlandaráðs og Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN) og var formaður sumra þeirra.

Eyþór var formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga 1960–1962, ritari Hins íslenska náttúrufræðifélags 1960–1964 og formaður þess 1964–1966 og 1976–1980. Hann var í stjórn Ferðafélags Íslands 1968–1979 og varaforseti þess 1977–1979. Hann var í stjórn Landverndar frá stofnun árið 1969 til ársins 1973 og í stjórn Surtseyjarfélagsins frá stofnun árið 1965. Eyþór var valinn félagi í Vísindafélagi Íslands 1987.

Eyþór var kjörinn félagi New York Academy of Sciences 1982, félagi Vísindafélags Íslendinga 1987, kjörinn „Foreign Member“ eistneska náttúruverndarfélagsins 1991, og kjörinn heiðursfélagi Hins íslenska náttúrufræðifélags 1993.

Eftir Eyþór liggja margar greinar um náttúrufræðileg efni með áherslu á grasafræði og náttúruvernd. Hann tók fjölda ljósmynda af plöntum og gróðurfari og hafa sumar þeirra birst í bókum, á veggspjöldum og póstkortum.

Útför Eyþórs fer fram frá Háteigskirkju í Reykjavík miðvikudaginn 1. desember kl. 13:00. Kirkjugestir þurfa að sýna fram á neikvætt covid-hraðpróf við innganginn sem tekið er á viðurkenndum stað, ekki eldra en 48 klukkustunda.