Holdafar rjúpna haustið 2021

Holdafar rjúpna, bæði fullorðinna fugla og ungra fugla, er mun betra en í fyrra og reyndar með því besta sem mælst hefur frá upphafi mælinga 2006. Þetta sýna mælingar á fuglum sem veiddir voru á Norðausturlandi í fyrri hluta nóvember.

Fylgst hefur verið með holdafari rjúpna síðan 2006. Eitt af því sem komið hefur í ljós er að mikill munur er á holdafari rjúpna eftir árum; ungfuglar eru að jafnaði í lakari holdum en fullorðnir fuglar en breytingar á milli ára eru þær sömu hjá báðum aldurshópum. Þessi mælikvarði á „hreysti“ rjúpunnar endurspeglar eitthvað sem fuglarnir hafa reynt í lífi sínu mánuðina á undan, það er yfir sumar og haust.

Í haust voru rannsakaðir 207 fuglar sem veiddir voru dagana 1.–14. nóvember. Fuglarnir voru fengnir að láni hjá veiðimönnum. Gerð var tölfræðigreining á öllu gagnasafninu 2006–2021 og sýna niðurstöður marktækan mun á holdastuðli á milli ára og á milli aldurshópa. Enginn munur var á kynjum. Marktæk samvirkni var á milli ára og aldurs og ára og kyns, það er almennu reglurnar um að ungar væru í lakari holdum en fullorðnir fuglar og að ekki væri munur á holdafari eftir kynjum voru ekki algildar. Sum ár var ekki munur á holdafari eftir aldri og eins var sum ár munur á holdafari eftir kyni. Einnig var samvirkni á milli kyns og aldurs marktæk og þá þannig að aldurshrif voru meiri fyrir kvenfugla en karlfugla.

Breytingar á holdastuðli eftir aldri fugla 2006-2021 héldust mjög vel í hendur á milli ára. Helsta frávikið var 2018 en þá skoruðu fullorðnir fuglar mjög lágt. Samanborið við fyrri ár var holdafar rjúpna nú í haust með því besta fyrir unga fugla og það besta sem mælst hefur fyrir fullorðna fugla. Ferlarnir fyrir holdastuðul stefna upp á við og bæði fullorðnir og ungir fuglar 2021 voru í mun betri holdum en 2020.

Minnisblað til áhugamanna um rjúpnarannsóknir