Náttúrufræðistofnun nýtur áframhaldandi mikils trausts

Landsmenn bera mikið traust til Náttúrufræðistofnunar Íslands samkvæmt nýrri könnun Gallup. Samkvæmt henni nýtur stofnunin mikils trausts 63% landsmanna.

Markmiðið með könnuninni er að kanna traust almennings til Náttúrufræðistofnunar Íslands og þróun á því, auk þess að bera niðurstöður saman við aðrar stofnanir. Stofnunin hefur tekið þátt síðan 2007, að árinu 2013 undanskildu, og er hún jafnan meðal stofnanna sem njóta hvað mest trausts.

Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar kemur Náttúrufræðistofnun Íslands ágætlega út í samanburði við aðrar stofnanir og er hún fyrir ofan meðaltalið. Þeim fjölgar sem segjast þekkja vel til starfsemi stofnunarinnar. Stofnunin nýtur mikils trausts 63% landsmanna, þar af bera um 13% fullkomið traust til stofnunarinnar, 27% mjög mikið traust og 24% frekar mikið traust. Litlar breytingar eru á heildarhlutfalli þeirra sem bera mikið traust til stofnunarinnar á milli ára en þó fjölgar þeim sem bera til hennar mjög mikið traust og fullkomið traust. Hlutlausum fjölgaði um eitt prósentustig milli ára, úr 30% í 31% og fjöldi þeirra sem bera lítið traust til stofnunarinnar fjölgaði úr 4% í 6%. 1% bera ekki traust til stofnunarinnar.