Náttúrufræðistofnun Íslands
Löðmundur, móberg. © Anette Th. Meier
Fréttir

Nýtt Fjölrit Náttúrufræðistofnunar - Gömul íslensk steinasöfn í Kaupmannahöfn

5.5.2010

Út er komið nýtt Fjölrit Náttúrufræðistofnunar „Gömlu íslensku steinasöfnin í Geologisk Museum í Kaupmannahöfn“, en ritið er það 53. í röðinni. Höfundur þess er Sveinn P. Jakobsson.

Sagt er frá íslenskum steinasöfnum sem varðveitt hafa verið í Geologisk Museum við Háskólann í Kaupmannahöfn. Hið stærsta þeirra nefnist „De islandske Samlinger“.

Merkasta sérsafnið er safn steina sem Jónas Hallgrímsson, Japetus Steenstrup og Magnús Grímsson tóku á árunum 1837-1848. Það var líklega eitt stærsta sérsafn íslenskra steina sem um getur á 19. öld. Í janúar 1910 var safnið hins vegar grisjað verulega. Nú geymir það 608 steinasýni og hefur Jónas Hallgrímsson safnað 308 þeirra, Japetus Steenstrup 206 og Magnús Grímsson 94 þeirra. Merkimiðar eru með hendi safnenda og er texti þeirra birtur orðrétt. Þeir veita nánari innsýn í jarðfræðirannsóknir þremenninganna.

íslenska steinaskráin Jónas Hallgrímsson
Hluti af fyrstu síðu gömlu íslensku steinaskrárinnar í Geologisk Muesum. Jónas Hallgrímsson safnaði 308 steinasýnanna sem Gömlu íslensku steinasöfnin í Geologisk Museum hafa að geyma. Eftir teikningu Helga Sigurðssonar.

Auk fyrrgreinds sérsafns eru í Geologisk Museum varðveitt nokkur önnur gömul íslensk steinasöfn, sem safnað var fram til 1910, m.a. af Helga Pjeturss.

Ritið má nálgast á vef stofnunarinnar á pdf-formi, en best er að hafa samband við bókasafn stofnunarinnar (bokasafn@ni.is) til að fá prentað eintak. Það kostar 1600 kr.



Senda grein


Efra hliðarval


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica