Alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni
Náttúrufræðistofnun Íslands vekur athygli á alþjóðlegum degi líffræðilegrar fjölbreytni. Að þessu sinni er dagurinn helgaður líffræðilegri fjölbreytni í hafi.
![]() |
| Alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni er 22. maí ár hvert. |
Fyrir næstum 20 árum síðan ákváðu sameinuðu þjóðirnar að tilnefna 22. maí alþjóðlegan dag líffræðilegrar fjölbreytni. Síðan þá hefur verið haldið upp á daginn til að leggja áherslu á mikilvægi þess að varðveita líffræðilegan fjölbreytileika á jörðinni.
Nánar má lesa um alþjóðlegan dag líffræðilegrar fjölbreytni á vef Samningsins um líffræðilega fjölbreytni.


