Fréttir

NÍ á Vísindavöku 2006

25.9.2006

Mörg hundruð manns heimsóttu bás Náttúrufræðistofnunar Íslands á Vísindavöku í september. Þar kynnti stofnunin starfsemi sína og geitungarannsóknir og vöktu flugurnar og búin sem þar voru til sýnis mikla athygli gesta. Í básnum voru einnig veggspjöld þar sem landnám og lífsferill geitunganna var rakinn sem og ljósmyndir á veggjum og skjá.

Mikill áhugi á geitungum

Náttúrufræðistofnun Íslands kynnti starfsemi sína og geitungarannsóknir á Vísindavöku RANNÍS

Vísindavaka 2006
Úr fræðslubás Náttúrufræðistofnunar.

sem haldin var föstudaginn 22. september 2006 í Listasafni Reykjavíkur. Mikill fjöldi lagði leið sína í bás NÍ og er greinilegt að þessir nýju landnemar vekja ekki bara ótta, heldur líka forvitni og áhuga fólks á öllum aldri.

Nýtt fræðsluefni um geitunga

Í tilefni Vísindvöku gaf Náttúrufræðistofnun út bækling um lífsferil geitunga, tegundirnar fjórar sem hér hafa fundist og stungur og ofnæmi fyrir þeim.

Hvað er í krukkunni?

Gestir gátu unnið til verðlauna með því að geta uppá fjölda holugeitunga í krukku, en þeir voru teknir úr búi í Kópavogi í lok ágúst 2006. Í verðlaun fyrir þann sem komst næst réttri tölu var að sjálfsögðu pöddubókin: Dulin veröld - Smádýr á Íslandi eftir Guðmund Halldórsson, Odd Sigurðsson og Erling Ólafsson, skordýrasérfræðing NÍ. Alls bárust 130 tillögur og var vinningshafi sá sem næstur komst réttri tölu.

Vísindavaka 2006

Hvað skyldu þeir vera margir?


Markmiðið með Vísindavöku er vekja áhuga almennings á vísindum og auka vitund um starf vísindamanna og mikilvægi þeirra. Þetta er í annað sinn sem Vísindavaka er haldin og var það mál manna að þetta væri vel þegin kynning á því mikla rannsóknastarfi sem fer fram á vísindastofnunum í landinu.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: