Hvítabjörninn vinsæll á Safnanótt
Fleiri hundruð manns heimsóttu sýningarsali NÍ á Hlemmi á Safnanótt og það var greinilegt að megin aðdráttaraflið var hvítabjörninn í biðstöð Strætó á Hlemmi en frá henni lágu „hvítabjarnarspor“ sem leiddu gesti í sýningarsalina og Möguleikhúsið. Hvítabjörninn verður á Hlemmi fram til 5. mars n.k. Ókeypis er í sýningarsalina frá og með 27. febrúar.
Á milli sex og sjöhundruð manns komu gagngert á Hlemm á Safnanótt, gæddu sér á íspinnum og kynntu sér það fræðsluefni sem á boðstólum var. Það var Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytis sem opnaði formlega örsýningu NÍ á Hlemmi um hvítabirni á Íslandi og loftslagsbreytingar. Meðal gesta voru hjónin Páll Reynisson og Fríða Ólafsdóttir eigendur Veiðisafnsins á Stokkseyri en þau lánuðu NÍ hvítabjörninn.
![]() |
![]() |
| Börnin horfðu agndofa á hvítabjörninn.Ljósm. Anette Meier. | Frá opnuninni: Fríða Ólafsdóttir, Magnús Jóhannesson, Jón Gunnar Ottósson og Páll Reynisson. Ljósm. Erling Ólafsson. |
Góð aðsókn var einnig í Möguleikhúsið, þar sem Snorri Baldursson og Guðmundur A. Guðmundsson fræddu gesti um loftslagsbreytingar og hvítabirni, en þeir eru orðnir tákn um þá miklu ógn sem lífríki á norðurslóðum stafar af útblæstri gróðurhúsalofttegunda og hækkuðu hitastigi lofthjúpsins. Þar voru einnig sýndar þrjár náttúrulífsmyndir eftir Magnús Magnússon.












