Náttúrufræðistofnun Íslands
Þórsmerkurrani 3. júní 2010, öskufall. © Kristján Jónasson
Fréttir

Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands 2007

29.10.2007

Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands var haldinn í 14. sinn föstudaginn 26. október á Hótel Loftleiðum. Umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, flutti ávarp þar sem hún ræddi m.a. um mikilvægi þess að styrkja stöðu náttúruverndar á Íslandi með því að veita aukið fé til rannsókna á grunnþáttum náttúrunnar og að leggja mat á gildi friðlýstra svæða. Eftir ávarp ráðherra flutti Jón Gunnar Ottósson, forstjóri, skýrslu stofnunarinnar þar sem fram kom m.a. að loksins hyllir undir raunverulega lausn á langvinnum húsnæðisvanda stofnunarinnar. Eftir nýafstaðið útboð hefur verið ákveðið að ganga til lokasamninga við fyrirtækið Urriðaholt ehf. um byggingu nýs húsnæðis fyrir stofnunina í Urriðaholti, Garðabæ, sem ljúka á fyrir haustið 2009.

Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands 2007Á ársfundinum var heiðursviðurkenning stofnunarinnar veitt í fyrsta sinn dr. Arnþóri Garðarssyni, prófessor við Háskóla Íslands, fyrir ómetanlegt framlag til rannsókna og vöktunar á náttúru Íslands og frumkvöðlastarf í verndun íslensks votlendis. Arnþór birti sína fyrstu grein um fuglalíf á Seltjarnarnesi aðeins 17 ára gamall og hefur allt frá því sett sterkan svip á náttúrufræðirannsóknir og kennslu. Með heiðursviðurkenningu Náttúrufræðistofnunar Íslands fylgdi útskorinn hrafn eftir Ragnhildi Magnúsdóttur, betur þekkt sem Ranka í Kotinu, sem er handverksmaður ársins 2006.

Þá var dr. Hörður Kristinsson, grasafræðingur, sæmdur gullmerki stofnunarinnar fyrir ómetanlegt framlag til grasafræðirannsókna á Íslandi, en hann á heiður að uppbyggingu gagnagrunns stofnunarinnar um íslenskar plöntur.

Mat á verndargildi háhitasvæða og ástand og vöktun sjófuglastofna voru umræðuefni í fræðilegri dagskrá fundarins. Kristján Jónasson, jarðfræðingur, greindi frá rannsóknum á verndargildi jarðminja á háhitasvæðum sem hófust vorið 2007 og Ásrún Elmarsdóttir, plöntuvistfræðingur, gerði grein fyrir rannsóknum og flokkun á gróðurfari þessara svæða sem staðið hefur frá árinu 2005. Ævar Petersen, fuglafræðingur, fjallaði um ástand sjófuglastofna á Norður-Atlantshafi og Guðmundur A. Guðmundsson, dýravistfræðingur, greindi frá rannsóknum á stofnstærð og vöktun bjargfugla á Íslandi.


Ársskýrslur Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Arnþór Garðarsson, prófessor Hörður Kristinsson, grasafræðingur, sæmdur gullmerki Náttúrufræðistofnunar Íslands
Arnþór Garðarsson, prófessor, tók á móti Heiðursviðurkenningu Náttúrufræðistofnunar Íslands. Ljósm. Ágúst Ú. Sigurðsson. Hörður Kristinsson, grasafræðingur, sæmdur gullmerki Náttúrufræðistofnunar Íslands. Ljósm. Ágúst Ú. Sigurðsson.


Senda grein


Efra hliðarval


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica