Fréttir
Björn sem felldur var 3. júní var smitađur af tríkínum - fréttatilkynning frá Karli Skírnissyni.
Rannsóknir Karls Skírnissonar dýrafrćđings á Tilraunastöđinni á Keldum á ísbirninum sem felldur var skammt frá Ţverárfellsvegi 3. júní 2008 sýndu ađ dýriđ var smitađ af tríkínum Trichinella sp. Kom ţađ ekki á óvart ţví rannsóknir danskra sérfrćđinga á ísbjörnum frá Austur-Grćnlandi sýndu ađ ţar var um helmingur fullorđinna ísbjarna smitađur af tríkínum á 9. áratugnum.
Líkur á smiti aukast eftir ţví sem ísbirnir eldast. Ţverárfellsbjörninn var orđinn miđaldra. Ţótt nokkur fita hafi veriđ á honum var hann samt óvenju léttur miđađ viđ árstíma sem bendir til ţess ađ árangur hans viđ kópaveiđar á ísnum á útmánuđum hafi veriđ lélegur. Ósagt skal látiđ hvort tríkínurnar höfđu áhrif á hreyfigetu dýrsins eđa hvort einhverjir ađrir sjúkdómsvaldar voru líka ađ hrjá dýriđ. Veirufrćđingar á Keldum munu innan skamms leita ađ mótefnum í blóđi dýrsins gegn nokkrum ţekktum veirusjúkdómum. Hraunbirnan verđur innan tíđar rannsökuđ á sama hátt á Tilraunastöđinni á Keldum.
Tríkínur eru ţráđormar sem eru illskeyttir sjúkdómsvaldar í mörgum tegundum spendýra, međal annars í refum, hundum, og nagdýrum. Sníkjudýriđ lifir líka auđveldlega í mönnum en menn smitast ekki nema viđ neyslu á hráu kjöti. Tríkínur valda sársaukafullum sjúkdómi ţar sem lirfurnar búa um sig í vöđvum og trufla hreyfigetu dýranna. Mikiđ af lirfum safnast fyrir í vöđvum sem krefjast mikils blóđstreymis, til dćmis í tungu, kjálkavöđva, ţind og hjarta en lirfurnar berast út um líkamann međ blóđrásinni.
Tríkínur hafa einu sinni áđur fundist í ísbirni á Íslandi en sá var skotinn norđur á Hornströndum á 7. áratugnum. Tríkínur gćtu auđveldlega haslađ sér völl í íslensku lífríki, til dćmis ef refur eđa hrćétandi ránfuglar kćmust í kjöt af tríkínu-smituđum ísbirni. Vegna ţessa er mikilvćgt ađ farga ísbjarnarhrćjum sem hér kunna ađ finnast eins fljótt og völ er á. Fljótlega verđur rannsakađ hvort birnan viđ Hraun var međ tríkínur en Guđnýjarbjörninn margfrćgi á Bolungarvík var ekki smitađur.
Tilraunastöđinni á Keldum 18. júní 2008,
Karl Skírnisson,
dýrafrćđingur


