Fréttir

Surtsey á heimsminjaskrá

8.7.2008

Surtsey er komin á heimsminjaskrá UNESCO sem einstakur staður náttúruminja á heimsmælikvarða. Þetta var tilkynnt í gærkvöldi á 32. fundi heimsminjanefndar UNESCO sem haldinn er í Quebec í Kanada. Fram kemur í rökstuðningi nefndarinnar að það sem þyki einna merkilegast við eyjuna er að hún hafi verið verndað friðland frá því hún myndaðist í eldgosi á árunum 1963 til 1967 og sé þannig einstök rannsóknastöð.
Fjöruarfi í Surtsey
Fjöruarfi í Surtsey. Ljósm. Erling Ólafsson.

Náttúrufræðistofnun hefur frá upphafi Surtseyjargossins haft umsjón með rannsóknum og reglubundinni vöktun í eyjunni í samvinnu við Hafrannsóknastofnun og Surtseyjarfélagið. Stofnunin vann skýrslu um Surtsey vegna tilnefningar hennar á heimsminjaskrána að beiðni heimsminjanefndar Íslands.

Skýrsla um tilnefningu Surtseyjar (pdf)

Umfjöllun um Surtsey á vef NÍ

Surtseyjarfélagið

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: