Frjókornafræðsla á Vísindavöku 2008
Mörg hundruð manns heimsóttu bás Náttúrufræðistofnunar Íslands á Vísindavöku í september. Þar kynnti stofnunin starfsemi sína með fræðslu um fjókorn. Í sýningunni voru veggspjöld með upplýsingum um hvað frjókorn eru, hvaða frjókorn valda ofnæmi og af hverju, hvers vegna frjókornamælingar eru mikilvægar og ýmislegt fleira. Boðið var upp á að skoða frjókorn í smásjá og frjógildra sem fangar frjókorn frá vori fram á haust í Reykjavík var til sýnis.
Í tilefni af Vísindavöku gaf Náttúrufræðistofnun út bæklinginn Fræðist um frjókorn þar sem upplýsingar um frjókorn eru gerðar aðgengilegar fyrir almenning:
![]() |
| Fræðslubæklingurinn Fræðist um frjókorn |
Hversu mörg frjókorn?
Náttúrufræðistofnun var með getraun á Vísindavöku. Að þessu sinni var um náttúrufræði- og stærðfræðilega nálgun að ræða. Spurt var hversu mörgum birkifrjókornum (stærð 26 μm) þyrfti að stafla upp til að ná sömu hæð og 128 cm 6 ára krakki. Rétt námundað svar var 49.231 birkifrjókorn en ágiskanir voru allt frá örfáum frjókornum upp í marga milljarða. Tíu manns voru með rétt svar. Dregið var úr réttum svörum og kom nafn Steinunnar Haddar Harðardóttur úr pottinum. Steinunn hlaut bókina Íslenskur Gróður eftir Hjálmar R. Bárðarson í verðlaun.
|
|
Ýmislegt var í boði fyrir börnin á Vísindavöku, m.a. rafeindasmásjármyndir af frjókornum sem hægt var að lita. Þegar smellt er á myndina opnast nýr gluggi með nokkrum frjókornamyndum til að prenta út og lita.



