Náttúrufræðistofnun Íslands
Breiðafjörður. © Anette Th. Meier
Fréttir

Vetrarfuglatalning 2008

16.12.2008

Hin árlega vetrarfuglatalning sem Náttúrufræðistofnun Íslands hefur skipulagt frá 1952 fer að þessu sinni fram sunnudaginn 28. desember n.k. Markmið vetrarfuglatalninga er að safna upplýsingum um fjölda og dreifingu fugla að vetrarlagi.

Niðurstöður talninga verða settar inn á vefsíðu Náttúrufræðistofnunar um vetrarfuglatalningar jafnskjótt og þær berast. Sjá einnig flýtival á þá síðu hér til vinstri.

Nánari upplýsingar um einstök talningarsvæði o.fl. veita Guðmundur A. Guðmundsson og Kristinn Haukur Skarphéðinsson.

Óvenju lítið sást af álftum í vetrarfuglatalningunni

Álftir. Ljósm. Jóhann Óli Hilmarsson.





 

Senda grein


Efra hliðarval


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica