Efni um líffræðileiðangur til Surtseyjar 2008 sýnt í kanadíska ríkissjónvarpinu
Þátturinn er aðgengilegur á netinu (athugið að fyrst er 10 sek. löng auglýsing). Þátturinn var fyrst sýndur í frönskumælandi hluta Kanada. Fyrir þá sem skilja ekki frönsku tala myndirnar sínu máli. Það voru þeir Bernard Laroche og Andre Bernard sem unnu að gerð þáttarins en í liði með þeim var Dúi Landmark kvikmyndatökumaður.
![]() |
| Leiðangursmenn í Surtsey. Talið frá vinstri Bernard Laroche, Bjarni D. Sigurðsson, Erling Ólafsson og Dúi Landmark í neðri röð, Andre Bernard, Gróa V. Ingimundardóttir, Guðríður G. Eyjólfsdóttir, Borgþór Magnússon og Sigurður H. Magnússon í efri röð. Ljósm. Sigurður H. Magnússon. |
Nánar um Surtseyjarleiðangur 2008.


